Fasteignaleitin
Opið hús:04. sept. kl 12:00-12:30
Skráð 30. ágúst 2026

Furugerði 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
304.4 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
220.000.000 kr.
Fermetraverð
722.733 kr./m2
Fasteignamat
181.150.000 kr.
Brunabótamat
145.250.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 1975
Garður
Svalir
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2034056
Landnúmer
107800
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurbætt að hluta
Raflagnir
endurbætt að hluta
Frárennslislagnir
endurbætt
Gluggar / Gler
endurbættir að hluta
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalapallur
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Vert er að benda á að myndum hefur verið breytt með stafrænni myndvinnslu.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega rúmgott og karaktermikið einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Furugerði 6 í Reykjavík. Húsið er teiknað af Ásmundi Harðarsyni arkitekt og stendur hátt á lóðinni með miklu útsýni. Eignin ber falleg einkenni íslenskrar byggingarlistar áttunda áratugarins með sýnilegum burðarbitum, mikilli timburnotkun, aukinni lofthæð, hallandi loftum og stórum gluggaflötum sem hleypa ríkulegri birtu inn í húsið.

Eignin býður upp á einstaklega rúmgóð og fjölbreytt rými og mikla möguleika fyrir fjölskyldu. Björt stofa og borðstofa mynda glæsilegt alrými þar sem fallegur arinn setur sterkan svip á rýmið. Í húsinu eru fjögur herbergi auk rúmgóðs sjónvarps-/fjölskylduherbergis, tvö baðherbergi, gestasalerni, góð geymslurými og rúmgóður bílskúr. Fallegur hringstigi tengir hæðirnar saman. Sveigjanlegt skipulag og fjölbreytt rými eru einn af helstu kostum eignarinnar og skapa góða möguleika til að aðlaga nýtingu hússins að ólíkum þörfum fjölskyldunnar.

Frá stofu er útgengi á rúmgóðan svalapall sem liggur meðfram húsinu og þaðan er gengið niður í skjólgóðan og gróinn garð. Lóðin er einstaklega falleg og gróskumikil með steyptum blómabeðum og fjölbreyttum fjölærum gróðri sem skapar skemmtilega og skjólgóða umgjörð um húsið.

Birt stærð eignarinnar er 304,4 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er innbyggður bílskúr 33,5 fm.

Eignin skiptist á efri hæð í forstofu, gestasalerni, hol/miðrými, eldhús, stofu og borðstofu og hjónaherbergi með baðherbergi. Á neðri hæð eru forstofa, hol/miðrými, fjögur herbergi, þar af eitt rúmgott herbergi sem nýtt hefur verið sem sjónvarps-/fjölskylduherbergi og er með útgengi á hellulagða verönd, baðherbergi, þvottahús og þrjár geymslur. Fallegur hringstigi tengir hæðir hússins saman. Innbyggður tvöfaldur bílskúr er við húsið.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is.

Nánari lýsing – efri hæð
Forstofa
er rúmgóð, flísar á gólfi.
Gestasalerni með handlaug og salerni, flísar á gólfi.
Hol eða opið miðrými með fataskáp, tengir saman helstu rými efri hæðarinnar, flísar á gólfi.
Eldhús með ljósri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og steini á borðplötum. Vönduð eldhústæki fylgja eigninni, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda einstaklega bjart og rúmgott alrými þar sem aukin lofthæð, hallandi loft, sýnilegir burðarbitar og stórir gluggafletir setja sterkan svip á rýmið. Fallegur arinn skapar hlýlega stemningu og frá stofu er útgengi á rúmgóðan svalapall til suðurs, þaðan sem gengið er niður í skjólgóðan garð, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott og er merkt bókaherbergi á samþykktum teikningum, parket á gólfi.
Baðherbergi er innaf hjónaherbergi og hefur verið útbúið að hluta í rými sem samkvæmt teikningum tilheyrir bílskúr. Þar er innrétting, sturta og salerni, flísar á gólfi og veggjum.

Nánari lýsing – neðri hæð 
Forstofa
með góðu aðgengi inn á neðri hæð, flísar á gólfi.
Hol eða opið miðrými er rúmgott með fataskáp og tengir saman rými hæðarinnar, parket á gólfi.
Sjónvarps-/fjölskylduherbergi er rúmgott og bjart rými, merkt hjónaherbergi á samþykktum teikningum. Útgengt er úr herberginu á hellulagða verönd og þaðan í garð, parket á gólfi.
Herbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi II er rúmgott, parket á gólfi.
Herbergi III er rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2023 og er með vandaðri innréttingu, upphengdu salerni og rúmgóðri walk-in sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er með glugga, var endurnýjað árið 2023 með góðri innréttingu og skolvaski, flísar á gólfi.
Geymslur eru þrjár á neðri hæð. Ein þeirra hefur verið nýtt sem herbergi og eldhúsaðstaða hefur verið útbúin þar, en aðgengi að vatni og frárennsli er til staðar. Rýmin eru skráð sem geymslur samkvæmt teikningum og gefa því möguleika á fjölbreyttri nýtingu.
Bílskúr er 33,5 fm, innbyggður og rúmgóður með góðri lofthæð og tveimur bílskúrshurðum. Í annarri hurðinni er innbyggð gönguhurð sem veitir þægilegt aðgengi.

Lóðin er einstaklega gróin og skjólgóð með fallegum og rótgrónum gróðri, steyptum blómabeðum og fjölbreyttum fjölærum plöntum. Frá stofu er útgengi á rúmgóðan og vel nýtanlegan svalapall sem liggur meðfram húsinu og þaðan er bein tenging niður í garð um útistiga. Saman mynda svalapallurinn og garðurinn skemmtilegt útisvæði með góðri tengingu við aðalrými hússins.

Eigninni hefur almennt verið vel við haldið í gegnum tíðina. Þvottahús og baðherbergi á neðri hæð var endurnýjað árið 2023 og samhliða framkvæmdunum var skipt um frárennslislagnir og neysluvatnslagnir á neðri hæð. Drenlögn austan við húsið, garðmegin, var jafnframt endurnýjuð vegna raka sem komið hafði fram í geymslu undir stiga. Rakaskemmdir voru lagfærðar og svæðið meðhöndlað af fagaðila. Innréttingar á baðherbergi innaf hjónaherbergi voru einnig endurnýjaðar og samkvæmt ástandsyfirlýsingu var öll þessi vinna unnin af fagaðilum. 

Árið 2023 var jafnframt skipt út Ticino-rafmagnstenglum fyrir staðlaða evrópska tengla. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð árið 2006 og eldhúsgólf flísalagt.

Húsið hefur verið málað reglulega að utan, síðast árið 2019 af fagmönnum, bæði múr- og tréverk. Stoðveggir voru málaðir árið 2023 og aftur árið 2026 og tréverk hefur verið málað að hluta þar sem mest mæðir á.

Hér er um að ræða afar áhugaverða eign fyrir þá sem kunna að meta vandaða byggingarlist, stór og björt rými og mikla möguleika. Arkitektúr hússins, aukin lofthæð, sýnilegir burðarbitar, arinninn, rúmgóður svalapallur og gróinn garður skapa einstaka heild á eftirsóttum og miðsvæðis stað í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stekkjarflöt 2
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Stekkjarflöt 2
Stekkjarflöt 2
210 Garðabær
294.8 m2
Einbýlishús
424
763 þ.kr./m2
224.900.000 kr.
Skoða eignina Geirakot 1
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Geirakot 1
Geirakot 1
356 Snæfellsbær
292.1 m2
Einbýlishús
614
291 þ.kr./m2
85.000.000 kr.
Skoða eignina Elsugata 15
Á einni hæð
Opið hús:06. sept. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Elsugata 15
Elsugata 15
815 Þorlákshöfn
97.9 m2
Raðhús
412
714 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Flókagata 8
Bílskúr
Skoða eignina Flókagata 8
Flókagata 8
105 Reykjavík
194.9 m2
Fjölbýlishús
724
795 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin