**Opið hús sunnudaginn 29. mars milli kl. 13:00 og 13:30**
Virkilega bjart og vel viðhaldið 142,5m² endaraðhús á einni hæð. Aukin lofthæð er í húsinu. Bjartar stofut, tvö til þrjú svefnherbergi. Frábær staðsetning þar sem stutt er leik- og grunnskóla ásamt verslun og þjónustu og afar fallegar göngu- og hjólaleiðir um Elliðaárdalinn, Rauðavatn og Heiðmörk. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 142,5m², þar af er bílskúr skráður 30,3m².
Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu og borðstofu, eldhús, 2-3 svefnherbergi. baðherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing.Komið er inn í flísalagða
forstofu með fatahengi. Frá forstofu er komið inn á gang sem tengir saman aðrar vistaverur.
Stofa og borðstofa eru saman í ákaflega björtu og fallegu rými með mjög góðri lofthæð. Frá stofu er útgengt út í garð og á timpurverönd til sem snýr í suðvestur.
Eldhús er með góðri hvítri innréttingu, gott skápa- og vinnupláss, innbyggð uppþvottavél. Gott pláss fyrir eldhúsborð.
Tvö rúmgóð
svefnherbergi eru í húsinu, bæði herbergin eru með fataskápum. Samkvæmt teikningu eru herbergin þrjú en búið er að sameina tvö þeirra í eitt stórt en lítið mál er að breyta þessu aftur í upprunalegt skipulag.
Baðherbergið er bæði með sturtuklefa og baðkari, innrétting um og yfir handlaug. Flísar eru á gólfi og upp á veggi.
Bílskúr parketlagður en hann var notaður sem herbergi um tíma. Innaf bílskúr er þvottahús og geymsla. Þaðan er hægt að ganga út í bakgarð.
Húsið er vel viðhaldið. Skipt var um þakjárn og pappa á síðasta ári, þá var húsið einnig mála að utan. Búið að endurnýja flesta miðstöðvarofna ásamt eitthvað að glerjum og opnanlegum gluggafögum.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is