Fallegt og vel skipulagt 231,8 fm raðhús á tveimur hæðum auk innangengs bílskúrs við Hellagötu 10 í Urriðarholti, 210 Garðabær. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestabaðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, þvottahús, anddyri og bílskúr. Góðar 19 fm svalir og verönd/garður fyrir aftan hús snýr til vesturs. Báðar hæðir eru með gólfhita. Í bílskúr er rafmagnshleðslustöð og bílaplan hellulagt með snjóbræðslu.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 231,8 fm. og þar af er innangengur bílskúr 30,6 fm.
Fasteignamat fyrir árið 2027 verður 165.900.000 kr.
Nánar um eignina
Efri hæð, gengið er beint inn á efri hæð hússins frá bílaplani.
Forstofa rúmgóð með sérsmíðuðum fataskápum og flísar á gólfi. Úr forstofunni er innangengt inn í bílskúr og gestasalerni.
Gestasalerni með glugga, upphengt salerni, sérsmíðuð innrétting, veggfóður á einum vegg og flísar á gólfi.
Eldhús með glæsilegri sérsmíðaðri eldhúsinnréttingu, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingunni, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, stór eyja með helluborði með innbyggðum háf og góðu hirslurými, borðplötur úr fallegum kvarts stein, góður tækjaskápur og parket á gófi.
Stofa/borðstofa er opin og björt með útgengi út á stórar 19 fm flísalagðar svalir sem snúa til suð-vesturs. Úr stofu/borðstofu er einnig gengið inn í svefnherbergi/sjónvarpsherbergi á efri hæðinni.
Sjónvarpsherbergi rúmgott með parketi á gólfi. Skv. teikningum er þetta svefnherbergi.
Steyptur stigi er á mili hæða með fallegu teppi og reyklituðu glerhandriði.
Neðri hæð
Sjónvarpshol tengir saman önnur rými á neðri hæðarinnar.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataherbergi og sér baðherbergi með baðkari. Inn af fataherbergi er rými sem í dag er nýtt fyrir infrarauðan saunaklefa með flísum á gólfi.
Baðherbergi 1 með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, innbyggð blöndunartæki, upphengt salerni og flísar á hluti veggja og flísar á gólfi.
Barnherbergi 1 með fataherbergi og parketi á gólfi. Herbergið var stækkað sem samsvarar fataherberginu.
Barnaherbergi 2 með parketi á gólfi. Herbergið var minnkað sem samsvarar fataherberginu í barnaherbergi 1 en hægt að stækka það aftur.
Baðherbergi 2 með innangengri sturtu, innbyggð blöndunartæki, snyrtileg innrétting, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er rúmgott með hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Útgengt er út á sólpall til suðurs með heitum potti af neðri hæðinni.
Bílskúr er innangengt úr forstofu, rúmgóður með milliflofti, hurðaropnari, bílahleðslustöð og epoxygólf. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu.
Lóðin er fullfrágengin.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is