Fasteignaleitin
Opið hús:13. júlí kl 12:30-13:00
Skráð 9. júlí 2026

Árskógar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
96 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
884.375 kr./m2
Fasteignamat
75.150.000 kr.
Brunabótamat
56.410.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Garður
Sameig. Inng.
60 ára og eldri
Fasteignanúmer
2053908
Landnúmer
112543
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
07
Hæðir í húsi
13
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

***NÝTT Á SKRÁ-OPIÐ HÚS VERÐUR HALDIÐÍ ÁRSKÓGUM 6 Á MÁNUDAGINN 13.JÚLÍ KL.12:30-13:00 ***

Húsakjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: fallega og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á sjöundu hæð með góðu útsýni og yfirbyggðum vestursvölum og stæði í bílageymslu að Árskógum 6 í Reykjavík fyrir 60 ára og eldri.    
Íbúðin er skráð skv. fasteignamati HMS 95,5 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 6,1 fm að stærð. 

Eignin skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi sem er með góðri þvottaaðstöðu innaf, eldhús og mjög rúmgott og bjart alrými sem skiptist í stofu-og borðstofu. Sér geymsla er í sameign og stæði í lokaðri bílageymslu.   
  
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í OPIÐ HÚS OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING UM EIGNINA


Nánari lýsing á eign:
Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og vínildúkur. 
Forstofa: Rúmgóð með tvöföldum fataskáp úr beiki sem nær upp í loft. 
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með beikiköntum, efri-og neðri skápar með flísum á milli, Endurnýjuð eldhústæki, spanhelluborð, háfur og ofn í vinnuhæð. Ísskápur og uppþvottavél fylgja einnig með.

Stofa-og borðstofa: Er rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum á tvo vegu og útgengi úr stofu út á yfirbyggðar vestursvalir sem eru með fallegu útsýni yfir borgina, út á sjó og til fjalla. 
Svefnherbergin eru 2:  Rúmgóð með góðum fataskápum úr beiki sem ná  upp í loft. Minna herbergið sem er út frá forstofunni er með gólfsíðum hornglugga sem er með fallegu útsýni. 
Baðherbergi: Endurnýjuð innrétting, spegill með innbyggðri lýsingu, vaskur innbyggður í borðplötu sturtuklefi, endurnýjað upphengt salerni. Flísar á veggjum og vínildúkur á gólfi. Innaf baðherberginu er þvottahús með hvítri innréttingu sem er með efri og neðri skápum, skolvaski og þvottasnúrum.    
Geymsla: Er í sameign sem er með hillum. 

Stæði í lokaðri bílageymslu: Vel staðsett bílastæði sem er með tengingu fyrir rafmagnsbíla. Þvottaaðstaða er fyrir bíla.

Hér er um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á sjöundu hæð með yfirbyggðum vestur svölum og stæði í lokaðri bílageymslu  í húsi sem hefur verið vel viðhaldið sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Húsvörður er starfandi í húsinu og sameignin er mjög snyrtileg. Mikil þjónusta er í boði í húsinu og þar er sameiginlegur matsalur á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar. Einnig er rúmgóður veislusalur á jarðhæðinni sem hægt er að leigja fyrir ýmis tækifæri. Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum og púttvelli. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu í Mjóddinni eins og matvöruverslun, bakarí, bókabúð, hreinsun, apótek og heilsugæslu svo eitthvað sé nefnt.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um Frístunda– og félagsstarf í Árskógum

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/10/201426.750.000 kr.33.700.000 kr.95.5 m2352.879 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7B íb.602
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 13:00-13:30
Eirhöfði 7B íb.602
110 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
32
973 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7A íb.305
Bílastæði
Opið hús:11. júlí kl 13:00-13:30
Eirhöfði 7A íb.305
110 Reykjavík
110.4 m2
Fjölbýlishús
3
950 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut (Miðja) 6
Hraunbraut (Miðja) 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut (Austurendi) 6
Hraunbraut (Austurendi) 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
638 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin