Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Hólabraut 8, 220 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 0301, fastanúmer 223-6297 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin er 2ja herbergja risíbúð á 3. hæð í þríbýli, birt stærð eignar 37.1 fm og þar af er 4,2 fm sérgeymsla undir útitöppum. Gólfflötur íbúðar rúmir 54 fm (þ.e. nettó stærð 54,4 fm og brúttó stærð 65,0 fm).
Lýsing:
2ja herbergja íbúð í risi við Hólabraut 8, Hafnarfirði með fallegu útsýni yfir höfnina.
Íbúðin er töluvert undir súð og því eru nýtanlegir fermetrar umtalsvert fleiri. Töluvert er af súðargeymslum í íbúðinni.
Gengið er inn í sameigilega flísalagða forstofu með miðhæð, upp dúkalagðan stiga í risíbúðina. Á stigapalli fyrir framan íbúðina er fatahengi. Komið er inn í bjart opið rými með eldhúsi og stofu. Eldhúsið er með um 10 ára innréttringu með quart steinplötum og harðparket á gólfi. Þar er sambyggð eldavél/ofn og góður borðkrókur. Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og út frá henni eru góðar vestur svalir. Hjónaherbergi er með parket á gólfi og góðum fataskáp og geymslurými. Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa, þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Köld útigeymslu er undir útitöppum, birt stærð 4,2 fm. Sameiginlegur garður með palli og grasfleti. Sameignar geymsla/tengiklefi er í kjallara. Sér rafmagns og hitamælar eru fyrir hverja íbúð.
Risíbúðin var byggð ca. 1998-2000 þegar nýtt þak var sett á húsið.
Skv. eignaskiptayfirlýsingu: Hiti og rafmagn er á mælum eignarinnar 0201. Skal eign 0301 þess vegna greiða 4,35% af hitareikningi þeirrar eignar vegna upphitunar og 90 KWh á ári í rafmagn.
Ekki er starfrækt formlegt húsfélag í húsinu.
Staðsetning og nærumhverfi:
Frábær staðsetning nálægt hjarta miðbæjarins í Hafnarfirði.
göngufæri eru:
- veitingahús, söfn, tónleikastaðir og margs konar þjónusta.
- Suðurbæjarsundlaugin
- verslunarkjarninn Fjörðurinn
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.