Fasteignaleitin
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 10. sept. 2026

Hveralind 10

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
143 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
147.700.000 kr.
Fermetraverð
1.032.867 kr./m2
Fasteignamat
124.600.000 kr.
Brunabótamat
86.000.000 kr.
Mynd af Pétur Ísfeld Jónsson
Pétur Ísfeld Jónsson
Byggt 1998
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2227100
Landnúmer
174997
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

NÝ EIGN Í SÖLU / OPIÐ HÚS VERÐUR Í HVERALIND 10, ÞRIÐJUDAGINN 15. SEPTEMBER KL. 17:00-17:30.    

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is    

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HVERALIND 10. 

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt verðmat á þinni eign. 

Húsaskjól og Pétur Ísfeld, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu glæsilegt og mikið endurnýjað parhús við Hveralind 10 í Kópavogi. 
Um er að ræða einstaklega vel skipulagt og fjölskylduvænt heimili á einni hæð þar sem mikil lofthæð, björt rými og vandaðar endurbætur skapa hlýlegt og nútímalegt yfirbragð. Eignin stendur á skjólgóðri lóð með rúmgóðum sólpalli, heitum potti og fallegum garði, auk þess sem bílaplan með snjóbræðslu rúmar allt að þrjá bíla. Hér er um að ræða glæsilega eign sem vert er að skoða, sjón er sögu ríkari.

Eignin er samtals 143,3 fm, þar af 118,6 fm íbúðarrými og 24,7 fm bílskúr.

Skipulag
Komið er inn í forstofu frá hellulögðu bílaplani. Frá forstofu er aðgengi að björtu og opnu alrými heimilisins þar sem eldhús, stofur og svefnálma tengjast á eðlilegan og þægilegan hátt.
Eignin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Auk þess eru rúmgóð geymslurými í risi yfir hluta hússins.
Frá stofu er útgengt á stóran suðurpall með heitum potti og fallegum, skjólgóðum garði sem nýtist einstaklega vel til útiveru.

Nánari lýsing
Forstofa Snyrtileg forstofa með steingráum flísum á gólfi, fatahengi og skóskáp. Hægt er að loka forstofunni frá öðrum rýmum hússins sem skapar notalega aðkomu.
Eldhús Smekklega endurnýjað eldhús með vandaðri HTH-innréttingu í gráum tónum og ljósri viðarborðplötu sem gefur rýminu hlýlegt yfirbragð. Steingráar flísar með gólfhita eru á gólfi. Góður gluggi við vask veitir fallega birtu og útsýni yfir garðinn. Eldhúsið er búið spanhelluborði með háfi, tveimur ofnum, þar af einum combi-ofni með örbylgju, og góðu plássi fyrir ísskáp.
Stofa Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum til suðurs og útgengi á timburpall og skjólgóðan garð. Rýmið býður upp á gott pláss fyrir rúmgóða setuaðstöðu og er tilvalið til samveru fjölskyldu og vina.
Fjölskyldustofa Fjölskyldustofan er staðsett í miðju hússins og tengir saman helstu vistarverur. Mikil lofthæð og opið skipulag gefa rýminu skemmtilega rýmiskennd og bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem um er að ræða sjónvarpsstofu, leikrými eða vinnuaðstöðu.
Hjónaherbergi Bjart og rúmgott hjónaherbergi með mikilli lofthæð, góðum fataskápum og ljósu vínilparketi.
Barnaherbergi 1 bjart og rúmgott barnaherbergi með fataskáp og ljósu vínilparketi.
Barnaherbergi 2 björt og rúmgóð barnaherbergi með ljósu vínilparketi.
Baðherbergi Fallega endurnýjað baðherbergi með HTH-innréttingu, góðu skúffu- og skápaplássi, rúmgóðu fráleggsrými og stórum spegli með lýsingu. Baðherbergið er útbúið upphengdu salerni, baðkari, sturtu og handklæðaofni. Steingráar flísar með gólfhita eru á gólfi og ljósar flísar á veggjum.
Þvottahús Rúmgott þvottahús er staðsett á milli íbúðar og bílskúrs. Þar er góð innrétting með vinnuborði, skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr Rúmgóður bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð og góðu geymslurými í risi yfir hluta hans.

Lóð Lóðin er einstaklega snyrtileg og vel hirt. Fyrir framan húsið er stækkað hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og plássi fyrir þrjá bíla. Á baklóð er stór og skjólgóður timburpallur með heitum nuddpotti, fallegri lýsingu og góðri aðstöðu til útiveru. Garðurinn nýtur sólar stóran hluta dags og býður upp á notalegt og friðsælt umhverfi.

Staðsetning Eignin er staðsett í eftirsóttu Lindahverfi í Kópavogi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu, almenningssamgöngur og fjölbreytt útivistarsvæði. Að baki lóðarinnar er opið grænt svæði með fallegum móa þar sem finna má krækiber, sem veitir aukið næði og skemmtilega náttúrutengingu. Hverfið er vinsælt meðal fjölskyldna vegna öryggis, góðrar þjónustu og þess að helstu þjónusta, svo sem Salalaug, heilsugæsla, apótek og matvöruverslun, er í þægilegu göngufæri.

Helstu endurbætur

  • Innanhúss
    • Eldhús endurnýjað með HTH-innréttingu, nýjum heimilistækjum og gólfhita.
    • Baðherbergi endurnýjað með HTH-innréttingu, nýjum tækjum, gólfhita og flísum frá Álfasteini.
    • Nýtt vínilparket lagt á öll gólf.
    • Nýjar innihurðir frá Parka.
    • Forstofa flísalögð með gólfhita.
    • Ný bílskúrshurð og rafdrifinn opnari.
  • Utanhúss
    • Bílaplan stækkað og rúmar nú þrjá bíla.
    • Ný skjólgirðing og snyrtileg geymsluaðstaða fyrir flokkunartunnur.
    • Garður endurhannaður með nýjum beðum og gróðri.
    • Timburpallur stækkaður og geymsluskúr byggður.
    • Heitur nuddpottur settur upp með stjórnbúnaði í bílskúr.
    • Útilýsing og rafmagnstenglar endurnýjuð við fram- og bakhlið húss.
    • Settar nýjar festingar í þakplötur
    • Þak og þakkantur málað
    • Húsið málað
    • Gluggar yfirfarnir


Hér er hægt að nálgast teikningar af eign 

Upplýsingar veitir: Pétur Ísfeld Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 862-5270 eða petur@husaskjol.is    

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/06/201234.750.000 kr.43.900.000 kr.143.3 m2306.350 kr.
01/02/200733.350.000 kr.41.250.000 kr.143.3 m2287.857 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 5 íb. 303
Lautargata 5 íb. 303
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
961 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 203
Lautargata 5 íb. 203
210 Garðabær
139.7 m2
Fjölbýlishús
413
944 þ.kr./m2
131.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 301
Lautargata 5 íb. 301
210 Garðabær
129.3 m2
Fjölbýlishús
413
981 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 25 (605)
1BBC3FBB-65EE-4937-A092-CF6F94CB5CF3.png
Hringhamar 25 (605)
221 Hafnarfjörður
150.5 m2
Fjölbýlishús
42
863 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin