Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Háteigsvegur 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
111.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
807.727 kr./m2
Brunabótamat
62.700.000 kr.
Byggt 1945
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20114402
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Háteigsveg 2. Heildarfermetrafjöldi eignarinnar er 111,3m2, eignin er á tveimur hæðum með sérinngangi, útgengi á tvennar svalir. Sérmerkt bílastæði á hellulögðu bílaplani á baklóð sem keyrt er að frá Háteigsvegi.

** Bókið skoðun hjá Maríu í síma 866-3934 eða maria@fastborg.is sýnum með stuttum fyrirvara**

 
Skipulag: Neðri hæð, sér inngangur, forstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaaðstaða inná baðherbergi. Efri hæð, sjónvarpshol, svefnherbergi.
 
Nánari lýsing:
Neðri hæð, skráð 71,1 m2, þar er flísalögð forstofa með fatahengi. Eldhús/borðstofa er flísalagt rými með svalir sem snúa til vesturs. Hvít eldhúsinnrétting með granít borðplötu, helluborð frá Siemens og bakaraofn frá Miele, gott vinnupláss í eldhúsi. Borðstofa liggur í L í framhaldi af eldhúsinu. Tvö svefnherbergi eru á neðri hæðinni, gott hjónaherbergi með fataskápum og minna barnaherbergi með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum með aðstöðu fyrir þvottavél/þurrkara í sérsmíðaðri innréttingu/skáp, stór sturtuklefi með glervegg, upphengt salerni og snyrtileg baðinnrétting, gluggi með opnanlegu fagi.
Efri hæð: 45,9 m2 er að hluta undir súð og því stærra en skráðir fermetrar gefa til kynna. Þar er opin björt stofa, útgengi út á svalir frá stofunni með útsýni yfir borgina til norðurs. Á hæðinni er einnig herbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa
Gólfhiti er í íbúðinni.
Íbúðinni fylgir sér geymsla 8,3 m2 á jarðhæð hússins
Lóðin er gróin og á hellulögðu plani við húsið eru skilgreind merkt bílastæði fyrir íbúðir hússins.

Upplýsingar um framkvædir undanfarinna ára frá seljendum:
Húsið var mikið til endurnýjað ca 2010-2011 þá var íbúðin endurnýjuð, rafmagn og lagnir í baðherbergi og eldhúsi, innréttingar og gólfefni.
Að utan var húsið endursteinað 2008-2009
Tréverk á ytra byrði málað 2024
Lagnagrind yfirfarin og lagfærð á sl. 2 árum, forhitari er á vatninu og því er neysluvatnið lyktarlaust
Gólfhiti er í íbúðinni allri og skipt um hitastýringu síðla árs 2025 (sett upp Icon2 móðurstöð frá Danfoss, sér vegghitastillir fyrir hvora hæð)
Vönduð tæki í eldhúsi, helluborð frá Siemens og bakarofn frá Miele.

Vel staðsett eign í nálægð við miðbæinn og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smiðjustígur 11
Smiðjustígur 11
101 Reykjavík
92,4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Efstaleiti 21
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 21
Efstaleiti 21
103 Reykjavík
99,8 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 90.350.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laugaborg íbúð 412
Hleðslustöð
Opið hús:31. okt. kl 13:30-14:00
Laugaborg íbúð 412
105 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 323
Hleðslustöð
Opið hús:31. okt. kl 13:30-14:00
Laugaborg íbúð 323
105 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
312
959 þ.kr./m2
90.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin