Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2026

Goðanes 3D 104

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Norðurland/Akureyri-603
68.2 m2
Verð
31.900.000 kr.
Fermetraverð
467.742 kr./m2
Fasteignamat
2.660.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Jarðhæð
Fasteignanúmer
2544434
Landnúmer
228146
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Kasa fasteignir 461-2010.

Goðanes 3D (104) – Nýtt 68,2 m² geymsluhúsnæði á neðri hæð með góðri aðkomu. Eign merkt 01-104.

Húsnæðið er um 10,5 metrar að dýpt og um 6,1 metrar að breidd með um 4 metra lofthæð
. Stór innkeyrsluhurð er á rýminu ásamt gönguhurð. Rúmgott malbikað bílaplan er við húsið.

Bygging og frágangur
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt liggjandi báruálsklæðningu. Innveggir og milligólf eru steypt. Þakið er úr 160 mm samlokueiningum með steinull og tvöföldu papplagi. Eignin afhendist með vélslípuðum veggjum og pússaðri áferð á gólfi. Gólfhiti er í rýminu og lagnir fyrir snyrtingu eru í gólfi samkvæmt teikningum.

Hurðir
Innkeyrsluhurðin er frá Límtré Vírneti, 3,6 metrar á breidd og 3,4 metrar á hæð, með rafdrifnum opnara. Gönguhurðin er ál/tré frá Húsasmiðjunni.

Rafmagn og lýsing
Rafmagnstafla er fullbúin. Lagt er fyrir einum þriggja fasa tengli, vinnuljósi í lofti og rofa við hurð. Ekki er dregið í aðrar dósir. Nokkrar viðbótardósir eru innsteyptar í veggi án ídráttar og er engin ábyrgð tekin á þeim lagnaleiðum. Útiljós verða yfir hverri innkeyrsluhurð. Ljósleiðari hefur verið dreginn inn í eignina.

Annað
- Sameiginlegt tæknirými er við norðurenda hússins, við innkeyrslu á lóðina.
- Brunakerfi hússins er fullfrágengið, með reykskynjara, sökkulsírenu og handboða í hverju bili.
- Meðfram húsinu er steypt stétt með hitalögnum.
- Aðkoma er góð og bílaplan stórt og malbikað.
- Lóðin er 6.504,7 m² leigulóð í eigu Akureyrarbæjar.
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð sem kaupandi yfirtekur. Auglýst verð er án vsk-kvaðar.
- Eignin er laus til afhendingar í október/nóvember.
- Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignarinnar þegar það verður lagt á, sem nemur 0,3% af brunabótamati hennar.

Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarstræti 100 íbúð 204
Hafnarstræti 100 íbúð 204
600 Akureyri
53.2 m2
Fjölbýlishús
211
731 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Davíðshagi 8 íbúð 202
Davíðshagi 8 íbúð 202
600 Akureyri
79.8 m2
Fjölbýlishús
313
788 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 10 3-118
Bugðufljót 10 3-118
270 Mosfellsbær
63.1 m2
Atvinnuhúsn.
11
466 þ.kr./m2
29.400.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10 - 101
Vesturbakki 10 - 101
815 Þorlákshöfn
53.1 m2
Atvinnuhúsn.
556 þ.kr./m2
29.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin