Fasteignaleitin
Skráð 28. júní 2026

Grundargata 9

RaðhúsVestfirðir/Drangsnes-520
83 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.900.000 kr.
Fermetraverð
336.145 kr./m2
Brunabótamat
47.650.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23563821
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Grundargötu 9 á Drangsnesi. Þriggja herbergja raðhús á einni hæð, byggt árið 2015. Eignin er 83 fm og stendur á rólegum og fjölskylduvænum stað með fallegu útsýni til sjávar. Stutt er í sundlaug, náttúru og aðra þjónustu.

Skipulag: Forstofa, stofa og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er rúmgóð geymsla sem býður upp á gott geymslupláss.
Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með aukinni lofthæð sem skapar fallega rýmiskennd og góða birtu. Stofan er með parketi á gólfi og útgengi út á timburpall.
Eldhús er með eikarinnréttingu, góðu skápaplássi bæði ofan og neðan borðplötu og fallegu útsýni til sjávar úr eldhúsglugga.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handlaug í innréttingu, handklæðaofni og þvottaaðstöðu.
Við húsið er timburpallur.

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Skoða eignina Sjávarborg 1 B
Sjávarborg 1 B
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
686 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Skoða eignina Sjávarborg 1 A
Sjávarborg 1 A
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Ennisbraut 5
Skoða eignina Ennisbraut 5
Ennisbraut 5
540 Blönduós
75.9 m2
Atvinnuhúsn.
1
316 þ.kr./m2
24.000.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin