Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
235 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
79.700.000 kr.
Fermetraverð
339.149 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
101160707
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd út frá stofu
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS VIÐ GOLFVÖLL* *SÉR GARÐUR OG EINKAÞAKVERÖND*

Glæsileg einbýlishús á tveimur hæðum, í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Húsin eru vel skipulögð og rúmgóð, með 4 svefnherbergjum og 3  baðherbergjum og góðu alrými. Góður garður með einkasundlaug, verönd út frá stofu og svalir útfrá svefnherbergi á efri hæð.
Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Stutt göngufæri á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Nýtt og glæsilegt klúbbhús er í byggingu á svæðinu. Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7. 

FRÁBÆRT VERÐ

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is, 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869.

Nánari lýsing:

Neðri hæð: Húsið skiptist í gott alrými með eldhúsi vel tengdu stofu og borðstofu. 
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. 
Þvottahús og geymsla.
Út frá stofunni er stór verönd og góður lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla.
Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.

Efri hæð: Glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Útgengi út á svalir.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

VERÐ:
Verð frá 549.900  Evrur. + kostn. (79.700.000ISK, gengi 1E=145ISK)

Innifalið í verði eru 20 golfhringir á Vistabella golfvellinum.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, þakverönd, golf, bílastæði, lokað svæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sjávargata 35
Á einni hæð
IMG_7059.JPG
Skoða eignina Sjávargata 35
Sjávargata 35
225 Garðabær
221,2 m2
Einbýlishús
725
858 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata - endaraðhús 40
fridjon_vefur-(16).jpg
Úugata - endaraðhús 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Bárugata 21
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bárugata 21
Bárugata 21
815 Þorlákshöfn
214,3 m2
Einbýlishús
514
741 þ.kr./m2
158.900.000 kr.
Skoða eignina Básahraun 22
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Básahraun 22
Básahraun 22
815 Þorlákshöfn
231,5 m2
Einbýlishús
614
518 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin