Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli með fallegu útsýni og suð-vestur verönd. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, sund og líkamsrækt auk fallegra útivistasvæða í kringum Úlfársdalinn.
Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu sem nýtt er í dag sem svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús, svefnherbergi, eldhús og stofu með útgengi út á suð-vestur verönd.
Birt stærð eignar 74,3 fm. en þar af er geymsla 14,6 fm.
Nánari lýsing:Forstofa / hol er parketlagt með dökkum fataskápum.
Eldhús er parketlagt með fallegri dökkri innréttingu frá HTH en þaðan er útgengt út á suð-vestur verönd. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa og borðstofa er björt með stórum og góðum gluggum og fallegu útsýni í opnu alrými út frá eldhúsi.
Hjónaherbergi er parketlagt.
Baðherbergi / Þvottahús er með flísalögðu gólfi, sturtu, upphengdu salerni og dökkri innréttingu með þvottaaðstöðu í vinnuhæð.
Geymsla er innan íbúðar og er 14,6 fm. og hefur verið nýtt sem svefnherbergi.
Verönd er með fallegu útsýni og hægt að stækka 3 metra til suð-vesturs og sem nemur breidd íbúðar, samtals 10,23 metrar.
Ein mynd er tölvuteiknuð með húsgögnum og á að sýna möguleika
Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf 8233022 evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.