Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2025

Asparskógar 18 - íbúð 113

Nýbygging • FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
70.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.500.000 kr.
Fermetraverð
834.522 kr./m2
Fasteignamat
56.450.000 kr.
Brunabótamat
44.900.000 kr.
Mynd af Sjöfn Hilmarsdóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2519864
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotaflötur
Lóð
2,04
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Björt og falleg 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.

** Möguleiki á hlutdeildarláni **

Domusnova Borgarnesi hefur til sölu 2ja - 5 herbergja íbúðir við Asparskóga 18 á Akranesi. Þriðji og síðasti hluti byggingar er nú kominn í sölu og eru tilbúnar til afhendingar 14 glæsilegar eignir, stærðir frá 56,8 - 130,1 fm. 

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Innan lóðar eru 32 bílastæði og þar af eru 14 hleðslustæði. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum ásamt gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta. 
 
Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir: Heimasíða - Asparskogar.is
Ýtið hér til að skoða skilalýsingu eigna: Skilalýsing - Asparskógar 18
Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag 
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.

Íbúð 113 er 70,1 fm. Sérinngangur er inn í eignina af jarðhæð og sérafnotareitur í suður. Innan eignar er anddyri, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þvottarými er í lokuðum skáp í miðrými eignar.
* 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngang 
* Stærð 70,1 fm.
* Afmarkaður sérafnotareitur í suður
* Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla

Nánari lýsing:

Anddyri: Fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vandaðar brúnar og hvítar Nobilia innréttingar frá GKS. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgegnt út á hellulagða verönd. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi I: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi. Þvottaaðstaða er í sér skáp í miðrými eignar.
Verönd: Hellulagður sérafnotareitur í suður, nær 3,0 m. út frá stofuvegg. Setja má timburskjólvegg í samræmi við þá skjólveggi sem þegar eru komnir á jarðhæð.


Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartímans. Bílastæði við götu eru malbikuð. Tengibúnaður (ídráttarrör) vegna hleðslu rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru hellulagðar stéttar.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans. Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)

EIGNIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR


Nánari upplýsingar og til að bóka skoðun:
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa Domusnova / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin