HESTUR 4, KIÐJABERG - NÝLEGT OG FULLBÚIÐ SUMARHÚSATH. EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUNFallegt 126 fm. nýlegt og fullbúið sumarhús með heitum og köldum potti.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING
Húsið skiptist í anddyri, rúmgott alrými, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahúsi.
Harðparket á öllum gólfum að undanskildum votrýmum, en þar eru flísar.
Baðherbergin er bæði flísalögð ljósum flísum, með sturtuklefa, innréttingu með vaskborði ofan á og salerni.
Gólfhiti í öllu húsinu.Húsið stendur á 8280 fm eignarlóð.
Góð aðkoma og næg bílastæði á lóð framan við sumarhúsið.
Rafdrifið öryggishlið er við veg.Nánari lýsingKomið er inn í rúmgott anddyri.
Þvottahús inn af anddyri með flísum á gólfi.
Hjónasvíta með fataherbergi, baðherbergi og hurð út á viðarpall.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi er flísalagt ljósum flísum. Sturtuklefi og hvít baðinnrétting.
Eldhús með innbyggðum ísskáp, innbyrggðri uppþvottavél, bökunarofni og örbylgjuofn í vinnuhæð, niðurfelldur vaskur.
Eldhúseyjan er með helluborði og góðu skúffu- og skáparými
Eldhúsið er opið við borðstofu og stofu og útgengi á viðarpall sem umlykur bústaðinn.
Þrjú svefnherbergi að auki við hjónasvítu.
Baðherbergi - flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og sturtuklefi.
Innihurðar eru hvítar yfirfelldar.
Stór verönd er í kringum húsið með heitum potti (hitaveitu) og einnig köldum potti.
Góð lofthæð er í húsinu.
Hestland stendur við
golfvöllinn Kiðjaberg sem er sérlega skemmtilegur.
Völlurinn liggur í ægifögru landi með skemmtilegu útsýni og friðsæld í íslenskri náttúru eins og hún gerist best.
Hestland er einnig steinsnar frá Hestvatni sem býður uppá bæði möguleika í veiði og vatnasporti. Þar er einnig tjaldsvæði með rafmagni og snyrtiaðstöðu.
Landeigendafélag er starfandi í hverfinu,
hestland.is Frá Reykjavík er um klukkustundar akstur.
Nánari upplýsingar veita:
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is