RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna til sölu einstaklega fallegt einbýlishús við Túngata 8 í Reykjavík. Túngata 8 er með elstu húsum í miðbænum, byggt árið 1915. Eignin hefur verið endurgerð að mestu í upprunalegum stíl. Húseignin skiptist í hæð, ris og kjallara, samtals er eignin 286 fm. Eignin býður upp á ýmsa nýtingarmöguleika hvort sem það er sem íbúðar-, gisti- eða skrifstofuhúsnæði. Virkilega fallegt og einstakt einbýlishús í hjarta miðborgarinnar, í jaðri Grjótaþorpsins, sem hægt er að mæla með. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Nánari lýsing:
Aðalhæð: Gengið er inn um aðalinngang þar sem gestasnyrtingu er innaf. Þrjú herbergi eru á hæðinni sem nýtt eru í dag sem sverfnherbergi, stofa og borðstofa. Hægt er að opna á milli þessara rýma. Eldhús er með góðri innréttingu með borðkrók. Við hlið eldhús er önnur forstofa með útgengt út í garð. Eignin er björt og rúmgóð með mjög góðri lofthæð. Fallegir og stórir gluggar ásamt breiðum bitum í lofti einkenna húseignina. Á milli hæða er fallegur timburstígi með kókosteppi á. Á gólfi eru að mestu upprunalegar gólffjalir sem búið er að pússa upp og olíubera.
Rishæð eru fimm herbergi, sem skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö minni sem eru undir súð. Einnig er á hæðinni baðherbergi og í öðru rými sturta. Á milli þessara rýma er gangur og útgengi út á steyptar svalir sem snúa út í garð. Á gangi er innfeldur skápur. Fallegt handrið er upp á efri hæð og góð lofthæð.
Kjallari skiptist í tvö rúmgóð herbergi, annað þeirra er með baðherbergi með sturtu innaf. Rúmgott þvottahús með tveimur sturtum og innréttingu. Stórt geymslurými er með dúk á gólfi. Hægt er að ganga úr kjallara. Ekki er full lofthæð í kjallara.
Viðhald hefur verið á eigninni á árunum 2015-2021:- Járnhlið út á götu. Allt laust brotið af steyptum stólpum, endursteypt og fílterað
- Hliðið sjálft viðgert og endursmíðað
- Steypt girðing umhverfis lóð háþrýstiþvegin, löguð og endurfílteruð
- Húseignin var múrviðgerð og máluð að utan. ·Múrskemmdir á hús lagaðar. Lausan múr hreinsaður, austur og vestur veggir boraðir og sprautað í sprungur með Resfomi. Veggir bollaslípaðir og veggir fílteraðir.
- Rennur og niðuföll lagfærð og endurnýjuð auk festinga
- Gluggar voru lagfærðir og málaðir
- Þak var háþrýstiþvegið, grunnað og málað
- Þakkanntar voru viðgerðir
- Eignin var máluð öll að innan, veggir, loft og gluggar
- Gólffjalir voru lagfærðar, pússaðar og lakaðar
- Rafmagn var endurnýjað að hluta
- Frárennslislagnir endurnýjað að hluta
- Vatnslagnir endurnýjaðar að hluta
- Tröppur bæði að framan og aftan lagfærðar og sílanbornar
- Hiti settur í tröppur við bak inngang
- Nýtt gólf í hluta af kjallara sem var dýpkaður
- Gestasnyrting á miðhæð er nýlega uppgerð
Frekari upplýsingar um eignina:- Hönnuður hússins var Benedikt Jónasson
- Túngata 8 er á eignalandi nr. 100600 og er steinsteypt einbýlishús, kjallari, hæð og ris, byggt árið 1915. Húsið er friðað. Í endurbótum þá hefur verið haldið upprunalegu útliti að mestu og einnig innra fyrirkomulagi. Gólf í litlum hluta kjallara(ca 20 fn,) hefur verið lækkað um 21 sm um leið og lagnir voru endurbættar.
- Allir útveggir og kjallaragólf er steinsteypt ásamt hluta af innveggjum. Gólfbitar eru 6 sinnum 6 heiltimbur klætt með 25 mm gólfborðum og að neðan 16 mm panel.
- Stigar á milli hæða er úr timbri.
- Þak var byggt úr timbursperrum með borðaklæðningu, þakpabba og bárujárni að ofan. Einangrun er á milli sperra og klætt að neðan með 16 mm panel.
Lóðin er sérlega falleg með grasflöt að framan og á baklóð er hellulögð verönd afgirt með friðuðum steinhleðluvegg.
Þetta er einstök eign sem er í jaðri Grjótaþorpsins sem vert er að skoða og sem býður upp á mikla möguleika. Eignin er nýtt í dag sem gistiheimili og hefur verið í farsælum leyfiskyldum rekstri. Eign sem vert er að skoða í hjarta höfuðborgarinnar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða senda mér póst á netfangið gudrun@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.