Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Foldahraun 40 2b, sem falleg og vel skipulgöð eign í fjölbýli í Vestmannaeyjum. Eignin er 90,3 m2 að stærð, þar af er 6,1 m2 geymsla í kjallara. Eignin er byggð úr steini árið 1975. Frábær fyrsta eign, fyrir þá sem eru að minnka við sig eða sem dvalarstaður í eyjum. Stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla þar sem er búið að koma upp skemmtilegu leiksvæði með hoppudýnu og fleiru. Búið er að skipta um þak á eigninni. fyrirhugaðar eru viðhaldsviðgerðir á húsinu sumarið 2025, ágætis staða er á hússjóð, hægt er að óska eftir yfirlýsingu húsfélags með nánari upplýsingum á dora@husfasteign.is. Eignin getur verið laus við kaupsamning.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Flísar á gólfi, skápur
Hol: Parket á gólfi
Eldhús: Parket á gólfi, falleg nýleg hvit innrétting, flísar á vegg á milli skápa. búið að opna eldhús
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir
Svefnherbergi: parket á gólfi, útgengt á svalir
Svefnherbergi: parket á gólfi,
Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar, vaskur með nettri innréttingu, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél
Geymsla: Geymslan er í kjallara hússins og er hún 6,1 m2
Svalir: Steyptar svalir með gervigrasi, fallegt útsýni
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.