SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEG NÝLEG ÍBÚÐ VIÐ STRÖND* *JARÐHÆÐ MEÐ SÉR GARÐI Í SUÐUR* *FRÁBÆR STAÐSETNING*Velkomin til Mil Palmeras! Hér kynnum við fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í nýlegum og glæsilegum íbúðakjarna.
Staðsetningin er frábær, í hjarta Mil Palmeras, þar sem byggðin fellur einstaklega vel að fallegu umhverfi. Aðeins 500 metrar eru að einni af fallegustu ströndum Miðjarðarhafsins. Hér er kjörinn staður fyrir þá sem vilja njóta bæði afslöppunar og ævintýra. Aðeins um 60 mínútna akstur er suður frá Alicante-flugvelli.
Íbúðin er á jarðhæð með sérgarði og aðgengi að fallegum sameiginlegum sundlaugargarði. Fjölmargir góðir golfvellir eru í næsta nágrenni. Stutt er að ganga niður á ströndina og einnig í verslanir og veitingastaði í bænum. Umhverfið er einstaklega fallegt og gróskumikið, með skemmtilegum göngu- og hjólaleiðum. Mil Palmeras er frábær staður til að njóta spænska lífsstílsins, hvort sem er sem sumarleyfisstaður eða til búsetu allt árið um kring.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869,
Nánari lýsing:Eignin var byggð árið 2017 og er 70 m² að stærð. Hún snýr einstaklega vel til suðurs, sem tryggir góða náttúrulega birtu allan daginn. Skipulag hennar er bæði þægilegt og hagkvæmt. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og nútímalegt opið eldhús sem tengist stofu og borðstofu á fallegan og samfelldan hátt og skapar þannig góða rýmistilfinningu. Einn helsti kostur eignarinnar er glæsileg 20 m² sérverönd, þar sem tilvalið er að njóta morgunverðar utandyra, slaka á eða njóta yndislegs loftslags á Costa Blanca.
HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR: 70 m² íbúðarrými. 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Suðurátt sem tryggir góða birtu.
20 m² sérverönd. Sameiginleg sundlaug. Einkabílskúr. Opið og nútímalegt eldhús. Selst með húsgögnum og heimilistækjum. Aðeins 500 metrar frá sjónum. Staðsetningin er einstaklega góð, með greiðu aðgengi að ströndum, börum, veitingastöðum, matvöruverslunum, apótekum, verslunarmiðstöðvum og fallegum almenningsgörðum.
VERÐ: 275.000 € + kostn. við kaupin.Örstutt göngufæri á fallega strönd, en Mil Palmeras ströndin er ein sú besta á Costa Blanca svæðinu. Einnig er stutt að rölta í miðbæinn, þar sem er úrval veitingastaða, verslana og þjónustu. Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi nálægt fallegri strönd. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Ótal góðir golfvellir á svæðinu.
Mil Palmeras er fallegur lítill strandbær í sveitarfélaginu Pilar de la Horadada, í Alicante héraði á Spáni. Það er staðsett við strönd Miðjarðarhafsins, sem liggur að Dehesa de Campoamor (Orihuela) í norðri og Torre de la Horadada í suðri. Þarna getur þú notið þriggja stranda með fínum hvítum sandi: Playa de Mil Palmeras, Playa Vista Mar og Playa Río Seco.
Við mælum heils hugar með þessari staðsetningu.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Hafðu samband við okkur og fáðu frekari upplýsingar.
Taktu fyrsta skrefið í átt að draumaeigninni þinni!
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 12%.
Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, air con, strönd,
Svæði: Costa Blanca, Mil Palmeras,