Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir til sölu: Stórhöfði 15, 110 Reykjavík við Gullinbrú, húsnæði með 23 herbergjum/skrifstofum fyrir rúmlega 30 aðila.
Í dag er rekið í húseigninni áfangaheimili, með gistileyfi, leigutekjur. Vilji er til staðar hjá leigutaka um að halda leigu áfram ef hægt er. Stórt eldhús, 2 x salerni og 1x sturta.
Stór lóð með samtals 72 bílastæðum. Skv. núgildandi eignaskiptasamning og eldri eignaskiptasamningi. Þá er réttur til bílastæða samtals 26,8%
Lóðin er samtals 5.201 fm. leigulóð. Hlutfall í lóð er 31,4 %
Fasteignamat árssins 2024 er 122.750.000 kr.
Brunabótamat árssins 2024 er 239.200.000 kr.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing: Gott aðgengi og næg bílastæði, komið er inn í forstofugang, þar á vinstri hönd er rúmgott geymslurými.
Frá forstofugangi er gengið upp á rúmgóða hæð þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja og þakgluggar sem gefa góða birtu inn í rýmið.
Opið alrými er fyrir miðju og fullbúið eldhús er á hæðinni. Salerni x 2, sturtuaðstaða og tenging fyrir þvottavélar og þurrkara. Innrétting ásamt handlaug er innan salernis og við sturtu.
Samtals eru 23 herbergi eru í rýminu 16 herbergi á neðri hæð og 7 herbergi á efri hæð.
Eldvarnarkerfi er í eign sem er tengt Securitas. Þak hefur verið yfirfarið og lagfært ásamt þakgluggum.
Allar nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli í síma
661-6056 / gulli@remax.is löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-