Magnús Már Lúðvíksson og Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltir fasteignsasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Stórglæsilegt, vandað og reisulegt tvílyft 412,9 fm einbýlishús að meðtöldum tvöföldum 54,6 fm bílskúr á 738 fm lóð á rólegum og eftirsóttum stað að Bleikjukvísl 24, 110 Reykjavík.
Húsið er vel byggt, teiknað af Kjartani Sveinssyni árið 1984 - Mjög flott og góð aðkoma er að húsinu -
Smelltu á slóð til að sjá húsið í 3-D
Eignin bíður upp á þann möguleika að auðvelt er að útbúa 2 íbúðir á sitthvorri hæðinni.
Frekari upplýsingar veitir Maggi í síma 699-2010 eða maggi@remax.is// Aukin lofthæð
// Fallegir gluggar í frönskum stíl
// Fallegir bitar í lofti úr Kanadískri furu
// Frábær staðsetning
// Tvöfaldur bílskúr
// Möguleiki að breyta í 2 íbúðir
// Skjólgóður bakgarður með heitum pottiNánari lýsing:Efri hæð - AðalinngangurAnddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.
Borðstofa: Parket á gólfi, rúmgott og bjart.
Arinstofa: Flísar á gólfi, þrep niður, fallegur arinn, útgengt út í garð.
Stofa: Parket á gólfi, fallegir franskir gluggar, fallegt útsýni yfir borgina.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, tengi fyrir uppþvottavél, stæði fyrir amerískan ísskáp, góður borðkrókur.
Herbergi/búr: Parket á gólfi, rennihurð frá eldhúsi (Lagnir til þess að breyta í þvottahús)
Herbergi: Parket á gólfi, rúmgott, útgengt út á svalir
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, gott skápapláss.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting undir handlaug, salerni, handklæðaofn, rúmgóður sturtuklefi með innfelldum tækjum, gluggar.
Sólskáli: Flísar á gólfi, innfelld lýsing í lofti, útgengt út á skjólgóða timburverönd
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr, flísar á gólfi, báðar hurðar með rafmagnshurðaopnara, rafmagn, heitt og kalt vatn, gluggi, inngönguhurð.
Garður efri hæð: Mjög fallegur og vel við haldinn garður í rækt.
Neðri hæð: Sérsmíðaður stigiHerbergi: Parket á gólfi, mjög rúmgott.
Herbergi: Parket á gólfi.
Herbergi: Parket á gólfi, mjög rúmgott.
Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi.
Geymslurými: Innaf sjónvarpstofu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting undir handlaug, góð lýsing, baðkar, salerni.
Gangur: Parket á gólfi, skápar.
Herbergi: Flísar á gólfi, sturtuklefi ásamt rými sem gæti nýst vel fyrir gufubað/saunu.
Þvottahús: Flísar á gólfi, mjög gott skápapláss, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þvottasnúrur, gluggi, skolvaskur.
Geymsla: Flísar á gólfi, rúmgóð geymsla, hillur.
Bakgarður: Algjör sælureitur
, garðurinn hefur þann kost að bera að hann er i góðu skjóli frá öðrum. Hellu- og timburlagður ásamt heitum potti, fallegum trjám og gróðri.
Húsið var málað að innan í sumar að mestu. - Húsið og þakið var málað fyrir 4 árum síðan.Um er að ræða frábæra fjölskyldueign á þessu vinsæla stað að Bleikjukvísl 24, 110 Reykjavík. Stutt í alla helstu þjónustuNánari upplýsingar veitir:
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
Sími: 699-2010 eða maggi@remax.is.
RE/MAX, Skeifan 17, 108 Reykjavík.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.