Til leigu verslunarrými í Sjafnargötu 1A, 603 Akureyri.
Um er að ræða nýtt verslunarrými í nýju húsi Tengi Ehf sem byggt var árið 2024 við Sjafnargötu 1A. Leiguhlutinn miðast við ca. 379 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði ásamt 144 fm skrifstofu og/eða starfsmanna rými og 17 m2 sameign, heildarstærð 540 m2. Rýmið sem er með 7-8 metra lofthæð og stórum gluggum er mjög sýnilegt og snýr í norð-austur að þjóðvegi 1. Mikil uppbygging er á svæðinu, en þar má helst nefna verslunarkjarnann Norðurtorg.
** Möguleiki er á að leigja efri hæðina sér og verslunarrýmið sér. **
Rýmið skiptist í Verslunarrými, bakrými/lager með innkeyrslu og gönguhurð og rúmgott milliloft sem hægt er að nýta sem starfsmanna aðstaða og skrifstofur.
Tilbúið til afhendingar
Hús- og skilalýsing vegna húsnæðis að Sjafnargötu 1A, 603 Akureyri
Eftirfarandi húslýsing miðast við ca. 379 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði ásamt 144 m2 millilofti og 17m2 sameign, heildarstærð 540 m2, sjá endanlega stærð í samþykktum byggingarnefndarteikningum.
- Húsið sjálft er stálgrindarhús ca. 25 metrar á breidd og ca. 55 metrar á lengd. Á þaki eru samlokueiningar og útveggjaklæðning úr samlokueiningum. Steinsteypt gólfplata er vélpússuð. Gólfplatan þolir meðal notálag 2,5 tonn/m2 og punktálag 7,5 tonn. - Frí lofthæð húsnæðis er ca. 7-8 metrar í sýningarsal. Húsnæðið afhendist án milliveggja fyrir utan þá sem skilja að leigurými og búið er að setja upp. Búið er að afmarka milliloft frá aðalrými með veggjum. - Gólfhiti verður á báðum hæðum byggingarinnar. Húsnæðið verður afhent án gólfefna. - Gluggar á framhlið og aðalinngangshurðir eru úr áli með tvöföldu einangrunargleri og rafknúnum opnunarbúnaði. Vöruhurð er í húsinu samkvæmt samþykktum byggingarnefndarteikningum. - Stofnlagnir fyrir brunaviðvörunarkerfi, rafmagn, og vatn ( heitt & kalt ) verða lagðar í rýmið og sér leigutaki um að aðlaga framangreint eftir sínum þörfum í hinu leigða rými. - Grunn rafmagnstenglar og dósir eru á kostnað leigusala, en aðrar útfærslur sér leigutaki um. - Loftræstisamstæða er komin á staðinn á kostnað leigusala, en uppsetning á loftræstistokkum er á kostnað leigutaka. - Vinnulýsing er uppsett í loftum á báðum hæðum. - Milliloft afhendist án milliveggja og sér leigutaki um að aðlaga það að sinni starfssemi. - Í lok leigutíma skal leigutaki skila húsnæðinu í sama ástandi og hann tekur við því nema með skriflegu samþykki leigusala. - Raflýsing á bílastæðum og á húsi við aðal- og vöruinngang eru frágengin. - Bílastæði eru malbikuð, kantsteinar steyptir og lóð jöfnuð og frágengin í endanlega hæð og hún þökulögð þar sem við á. - Gangstéttar framan við hús og við vörumóttöku eru steyptar eða malbikaðar með hitalögn. - Rýmið verður afhent í því ástandi sem hér að framan greinir en auk þess verður það þrifið og allt rusl fjarlægt.
Húsið verður afhent í því ástandi sem hér að framan greinir en auk þess verður það þrifið og allt rusl og afgangs byggingarefni flutt af byggingarstað.
Nánari upplýsingar veita: Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999. Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.