Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Bæjarlind 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
64.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
1.040.435 kr./m2
Fasteignamat
58.550.000 kr.
Brunabótamat
48.350.000 kr.
Mynd af Unnur Svava Sigurðardóttir
Unnur Svava Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2504082
Landnúmer
223099
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
11
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Frá því húsið var byggt
Raflagnir
Frá því húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því húsið var byggt
Þak
Frá því húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Fasteignasalan TORG kynnir:  Glæsileg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í  verðlaunuðu lyftufjölbýli á frábærum stað í Lindahverfinu í Kópavogi þaðan sem stutt er í alla þjónustu. Íbúðin skiptist í forstofu, opið eldhús og stofu, rúmgott svefnherbergi og baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Yfirbyggðar suðvestur svalir með fallegu útsýni. Næg bílastæði fyrir utan húsið. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:   BESTLA byggingarfélag byggði húsið árið 2019 og er það 11 hæða fjölbýli með 45 íbúðum og tveimur lyftum. Húsið fékk hönnunarverðlaun Kópavogsbæjar árið 2019 þar sem þótti skera sig úr fyrir vandaða hönnun, gott skipulag, yfirbyggðar svalir sem auka notagildi, og glæsilegt útsýni.  Tveir inngangar eru í húsinu, við Bæjarlind og bak við húsið af bílastæði. Báðir inngangar með dyrabjöllum. Auk alls þessa er húsið viðhaldslítið og efnisval vandað.
Forstofa: Með lausum fataskáp (fylgir) og flísum á gólfi.
Eldhús: Með hvítum neðri innréttingum og dökkum efri skápum. Dökk borðplata. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja.  Áfast barborð fyrir tvo sem nýtist vel sem morgunarverðarborð. Opið að hluta inn í stofu.  
Stofa: Rúmgóð með rými fyrir stóran sófa og borðstofuborð. Á einum vegg hefur verið bætt við fallegum panel og inn í hann festur sjónvarpsskápur.  Bæði panellinn og sjónvarpsskápurinn fylgja. Útgengt á svalir.
Svalir: Yfirbyggðar svalir í suðvestur með fallegu útsýni. Á svalagólfi eru viðarplötur (sem fylgja). Þá eru einnig upphengdar snúrur á svölunum. Hornsófi sem þar er nú fylgir einnig.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með fimmföldum, loftháum fataskáp.  
Baðherbergi: Flísalagðir tveir veggir og gólf. Sturta með glervegg, upphengt salerni og handklæðaofn. Innrétting við vask með tengi fyrir þvottavél og rými fyrir þurrkara fyrir ofan.   
Gólfefni:  Fallegt ljóst harðparket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi og í forstofu, þar sem eru ljósar flísar.  
Sérgeymsla:  6,8 fm sérgeymsla með hillum er í sameign.
Sameign: Sameign er öll hin snyrtilegasta. Sameiginleg vagna og hjólageymsla með útgengi beint út á Bæjarlind.
Glæsileg 2ja herbergja íbúð í verðlaunuðu fjölbýli á frábærum stað í Kópavogi þaðan sem stutt er í alla þjónustu auk þess sem stofnbrautir eru mjög skammt undan.  Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/08/202352.050.000 kr.52.500.000 kr.64.3 m2816.485 kr.
27/11/202035.100.000 kr.42.400.000 kr.64.3 m2659.409 kr.
31/10/201932.400.000 kr.42.400.000 kr.64.3 m2659.409 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Garðatorg 4
Bílastæði
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Garðatorg 4
Garðatorg 4
210 Garðabær
101 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 9B
Skoða eignina Eskivellir 9B
Eskivellir 9B
221 Hafnarfjörður
84.8 m2
Fjölbýlishús
312
765 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1074 þ.kr./m2
66.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
garden.jpg
Skoða eignina Hafnarbraut 10b
Hafnarbraut 10b
200 Kópavogur
127.1 m2
Fjölbýlishús
423
936 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin