Fasteignaleitin
Skráð 11. júní 2026

Arnarhlíð 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
59.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.094.435 kr./m2
Fasteignamat
62.900.000 kr.
Brunabótamat
42.150.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2360708
Landnúmer
220841
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Endurnýjað eftir þörf
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Annað sem varðar húsfélagið:
Byggingaraðili á eftir að klára frágang á húsinu og stjórn lét óháðan aðila taka út húsið og gerð var kostnaðaráætlun. Sjá minnisblað Hjá Ingvarsson, febrúar 2024. Á aðalfundi 2025 kom fram að byggingaverktaki væri enn að vinna í lokafrágangi. Sjá aðalfundargerð 26.02.2025.
Á aðalfundi 2026 var samþykkt að ráða lögmenn til að taka áfram vandamál við frágang byggingaverktaka, sérstaklega á þaki. Sjá aðalfundargerð 06.05.2026.
Kvöð / kvaðir
411-R-002504/2013: Kvaðir m.a. um framkvæmdaröð, yfirborðsvatn, nauðsynlegt landrými í og við götur m.a. fyrir veitur
Falleg og björt 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í Arnarhlíð 1
- Svalir og góð lofthæð
- Húsið var byggt árið 2018
- Íbúðin er 55,7m² og geymsla er 3,6m²



Nánari upplýsingar veita:
Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í opið alrými með stofu og eldhúsi til vinstri, en baðherbergi er staðsett til hægri.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa sem tengist eldhúsi í opnu alrými. Parket er á gólfi, lofthæð góð og gluggar hleypa birtu inn í rýmið. Úr stofu er útgengt á svalir. 
Eldhús: Smekklegt eldhús með parketi á gólfi, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og bakaraofni. Gott skápapláss, eyja og háfur yfir eldunarsvæði.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi, góðu skápaplássi og góðri lofthæð. Inni í herberginu eru gluggar með myrkvunargardínum sem vísa út á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Rennihurð skilur baðherbergi og þvottaaðstöðu að. 
Geymsla: Sérgeymsla í sameign er 3,6 m² með góðri lofthæð.

Lokað sameiginlegt bílastæði fyrir íbúa.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Sameiginlegar svalir á öllum hæðum.

Samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu nema mánaðarleg húsfélagsgjöld 40.406 kr. á mánuði í júní, júlí og ágúst. Sá kostnaður er greiddur af seljanda samkvæmt uppgjöri síðasta árs. Að loknu uppgjöri lækka húsfélagsgjöldin í 28.815 kr. á mánuði.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/05/202243.050.000 kr.59.500.000 kr.59.1 m21.006.768 kr.
26/10/201833.950.000 kr.39.800.000 kr.59.1 m2673.434 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnabraut 8
Skoða eignina Tjarnabraut 8
Tjarnabraut 8
260 Reykjanesbær
90 m2
Fjölbýlishús
312
639 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 3
Bílskúr
Skoða eignina Vetrarbraut 3
Vetrarbraut 3
815 Þorlákshöfn
254.4 m2
Parhús
413
275 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Krókatún 15
Opið hús:15. júní kl 16:15-16:45
Skoða eignina Krókatún 15
Krókatún 15
300 Akranes
111 m2
Fjölbýlishús
413
439 þ.kr./m2
48.700.000 kr.
Skoða eignina Njörvasund 21
Skoða eignina Njörvasund 21
Njörvasund 21
104 Reykjavík
63.2 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin