Fasteignaleitin
Opið hús:17. ágúst kl 17:30-18:00
Skráð 15. ágúst 2026

Rauðalækur 53

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
67.6 m2
2 Herb.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
960.059 kr./m2
Fasteignamat
61.000.000 kr.
Brunabótamat
43.350.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1961
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2016320
Landnúmer
103968
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað, rofar og tenglar endurnýjaðir
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað þakjárn og pappi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Einn tengill í forstofu á bakvið fataskáp virkar ekki. Bólga er á vegg undir sólbekk í stofu sem talið er að séu gömul ummerki frá því áður en skipt var um gler í glugganum.
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna einstaklega sjarmerandi, bjarta og vel skipulagða 2. herbergja íbúð með rúmgóðum L laga svölum á efstu hæð í fallegu sjö íbúða húsi á eftirsóttum stað við Rauðalæk 53 í Laugarneshverfinu. Um er að ræða afar fallega og mikið endurnýjaða eign í húsi sem fengið hefur gott viðhald í gegnum árin. Á undanförnum árum hefur m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni verið endurnýjað ásamt stigagangi, þaki og ytra byrði húss. 
Skipulag íbúðarinnar er eftirfarandi: Forstofa, eldhús, stofa, hjónaherbergi, baðherbergi, sérmerkt bílastæði fyrir framan hús, geymsla í kjallara. 
Skv. HMS er eignin skráð 67,6 fm þar af er geymsla 3,3 fm. Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 11,38%. Hússjóðsgjald er 19.563 kr á mánuði. 

Frábær staðsetning þar sem stutt er í Laugardalslaug, World class, verslunarkjarna þar sem m.a. má finna Kaffi Laugalæk, Matland, Brauð og co, Krambúðina, Pylsumeistarann og Ísbúð Laugalæks skóla, leikskóla,

Framkvæmdir síðustu ára: 
2026 Skipt um gler í svalahurð
2026 Skipt um teppi í sameign og veggir málaðir
2025 Veggir eldhúss veggfóðraðir og settar veggþiljur og listar
2025 Fortstofa og stofa máluð
2025 Nýr skápur í forstofu
2024 Þak endurnýjað, skipt um pappa og járn 
Framkæmdir fyrri eigenda:
2022: Ný blöndunartæki í baðkari/sturtu
2022:  Nýr bakaraofn
2021: Eldhús endurnýjað, innrétting og tæki
2020: Sólbekkir endurnýjaðir í allri íbúðinni
2020: Settur upp háskápur í baðherbergi
2020: Húsið múrviðgert og málað. Svalahandrið á húsinu endurnýjuð og endursteypt. Gluggi í sameign endurnýjaður að mestu leyti og gler endurnýjað, eingöngu ytri karmur endurnýttur.
2019: Gólfefni endurnýjuð fyrir utan baðherbergi

Nánari upplýsingar veitir:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is


Lýsing eignar:

Gólfefni íbúðar eru harðparket fyrir utan á baðherbergi.

Forstofan er með fataskáp með speglahurðum og fatahengi á vegg. 
Eldhúsið er afar rúmgott og bjart, falleg hvít klassísk innrétting með viðarborðplötu. Gott skápa og vinnupláss, innbyggð uppþvottavél, helluborð og innbyggður bakaraofn i vinnuhæð. Fallegur vaskur með gylltum blöndunartækjum, viðarþiljur á vegg ásamt veggfóðri og fallegum opnum hillum. Á öðrum veggjum er einnig fallegt mynstrað veggfóður ásamt sjarmerandi veggþiljum og listum. Góð aðstaða fyrir borðaðstöðu. 
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu. Útgengt er á rúmgóðar suðvestur L laga svalir með fallegu útsýni. 
Hjónaherbergið er vel skipulagt og bjart með nægu rými fyrir húsgögn, góður fataskápur á vegg. Stór gluggi á vegg veitir góða birtu inn í herbergið. 
Baðherbergið er með hlýlegum fallegum flísum á gólfi og veggjum, innrétting undir vaski, stór spegill á vegg fyrir ofan, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, upphengt salerni. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahúsið er sameiginlegt, stórt og bjart með lökkuðu gólfi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Hjóla og vagnageymsla er staðsett við útgang á baklóð hússins.
Sérmerkt bílastæði fyrir framan húsið.
Í sameign er 3,3 fm geymsla sem tilheyrir íbúðinni. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/05/202455.150.000 kr.65.200.000 kr.67.6 m2964.497 kr.
30/03/202239.250.000 kr.56.000.000 kr.64.3 m2870.917 kr.
14/09/201829.800.000 kr.34.900.000 kr.64.3 m2542.768 kr.
07/01/200814.380.000 kr.21.000.000 kr.64.3 m2326.594 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg 315
Hleðslustöð
laugaborg 315.jpg
Skoða eignina Laugaborg 315
Laugaborg 315
105 Reykjavík
82.8 m2
Fjölbýlishús
312
1039 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24
Skoða eignina Borgartún 24
Borgartún 24
105 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
312
980 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 12
Opið hús:19. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kleppsvegur 12
Kleppsvegur 12
105 Reykjavík
81.3 m2
Fjölbýlishús
312
830 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (216)
Hleðslustöð
móa_vefur (3).jpg
Skoða eignina Laugaborg (216)
Laugaborg (216)
105 Reykjavík
83.5 m2
Fjölbýlishús
312
1006 þ.kr./m2
84.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin