Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 og Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Kársnesbraut 39, 200 Kópavogi.
Um er að ræða glæsilegt vel viðhaldið einbýlishús á einni hæð auk sérstæðs bílskúrs á vinsælum stað á Kársnesinu með stórbrotnu útsýni yfir sjó og borg, allt frá Esjunni til Snæfellsjökuls.
Gönguleið er úr lóð inní hverfið að ofanverðu í átt að Kópavogslaug.
- Eignin er skráð 208 fm á stærð sem skiptast þannig að íbúðarhæð er 164,7 fm og bílskúr 43,3 fm.
- Einbýlishús á einni hæð - gengið upp tröppur á þá hæð
- Bílskúr 43,3 fm neðar í lóðinni
- 4 svefnherbergi.
- Gestasalerni og baðherbergi endurnýjuð
- Sólstofa, SV verönd við húsið og NV 43 fm útsýnisverönd yfir bílskúrnum.
- Einstaklega fallegur og gróinn garður.
- Rafmagnshleðsla.
- Húsið var málað 2022.
Einbýlishúsið er á einni hæð og gengið er upp tröppur vinstra megin við húsið á litla austurverönd og þar er anddyri hússins.
Húsið skiptist í: Anddyri, gestasalerni, forstofuherbergi, hol, sjónvarpskrók, sólstofu, stofur, eldhús, svefnherbergisgang, baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottahús. Geymsluloft. Bílskúr.
Nánari lýsing;
Andyri: Flísalagt með fatahengi. Nýleg gólfefni og settur hiti í gólf 2023.
Gestasalerni: Af forstofu. Endurnýjað 2024. Flísalagt á gólfi og veggjum. Upphengt salerni og vaskur. Hiti í gólfi og gluggi.
Forstofuherbergi: Flísalagt, málað og settur hiti í gólf 2023.
Hol: Parketlagt með uppteknu lofti. Opið við sjónvarpskrók í opnu rými. Opnast inn í sólstofu, stofur, eldhús og svefnherbergisgang.
Sólstofa: Af sjónvarpsholi. 16,8 fm. Flísalögð með útgengi á pall og garð.
Stofur: Tvöföld flísalögð stofa, rúmgóð og björt með stórum gluggum og arni. Einstakt óhindrað útsýni er úr stofu til N/NV yfir Fossvoginn og út á haf. Sjón er sögu ríkari.
Eldhús: Opið við stofu. Endurnýjað 2010. Flísalagt. Rúmgott eldhús með hvítri U-laga innréttingu og borðkrók. Bjart, með gluggum á 2 hliðum.
Svefnherbergisgangur: Af holi, parketlagður með skáp. Af honum eru; baðherbergið, 3 svefnherbergi og þvottahús. Öll herbergin snúa inn í garðinn. 2021 skipt var um gólfefni og skápa.
Hjónaherbergi: Parketlagt með skápum á heilum vegg.
Barnaherbergi I: Parketlagt með skáp.
Barnaherbergi II:Parketlagt með skáp.
Baðherbergi: Endurnýjað 2016. Flísalagt á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, vaskinnrétting, baðkar og innbyggður sturtuklefi. Opnanlegur gluggi er á baði.
Þvottahús: Flísalagt með hita í gólfi 2023. Borðpláss, hillur og skolvaskur. Opnanlegur gluggi og útgengi í garð, þar eru útisnúrur.
Geymsluloft: Gengið er upp á loftið úr þvottahúsinu. Rýmið nær yfir stærstan hluta hæðarinnar utan holsins.
Bílskúr: Skráður 43,3 fm. Heitt og kalt vatn. Með innkeyrsluhurð og hurð að framan, 16 A rafmagni og tengi fyrir bílahleðslu. Gluggar á einni hlið.
Hitalögn er í innkeyrslu og bílaplani að framanverðu.
Lóðin: Er skráð 795 fm. og er í hlíð ofan götu á klöpp og er því stölluð bakatil. Hún er að mestu tyrfð með fallegum blómabeðum að aftan og til hæ. hliðar við húsið.
Frá sólstofunni er útgengi á skjólsæla veönd og framan við húsið er beint útgengi af lóð á 43 fm verönd sem snýr í átt að Fossvoginum. Að auki er lítil verönd vinstra megin við húsið fyrir framan inngang.
Hægt er að ganga út í lóðina á amk 3 stöðum úr húsinu og því frábærir nýtingarmöguleikar á henni. Mikil skjólsæld er í garðinum.
Samantekt: Hér er um að ræða einstaklega rúmgott, vel viðhaldið og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með góðum bílskúr, fallegum garði og stórbrotnu útsýni.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VALHÖLL fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati.
Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.