Lögheimili Eignamiðlun ehf. Ólafía Ólafsdóttir lgf. og Guðlaug Halldórsdóttir lgf., kynna eignina Klukkuvellir 38 A, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 235-4641 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Rúmgott og vel skipulagt þriggja herbergja raðhús með bílskúr á Völlunum í Hafnarfirði með heitum potti og þremur bílsstæðum. - MÖGULEIKI Á AÐ BÆTA VIÐ ÞRIÐJA SVEFNHERBERGINU
- HEITUR POTTUR Á AFGIRTRI VERÖND
- VEGLEGT BÍLASTÆÐI
- BÍLSKÚR MEÐ SÉR INNGANGI OG TVEIMUR GLUGGUM
- STUTT Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU - SKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU
- MÖGULEG SKIPTI Á ÓDÝRARI FASTEIGN
Við kynnum með stolti til sölu fallegt og bjart raðhús í grónu og vinsælu hverfi á Völlunum í Hafnarfirði. Eignin er 136 fm að stærð og stendur á rólegum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu - leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttaaðstöðu.
Lýsing eignar:*Stofa og eldhús eru í opnu og björtu alrými með fallegu parketi. Út úr hjónaherbergi er útgengt út á sólpall með nýjum
heitum potti, sem gerir útiveruna einstaklega notalega allt árið um kring.
*Eldhúsið er með innréttingu með viðarútliti, spanhelluborði, ofni, örbylgjuofni, rými fyrir tvöföldum ísskáp og rými fyrir uppþvottavél. Þar er einnig notalegur
borðkrókur.
*Baðherbergi er rúmgott, flísalagt með bæði baðkari og sturtu, snyrtilegri innréttingu með vaski og handklæðaofni.
*Tvö svefnherbergi, bæði með parketi og góðum gluggum sem hleypa birtunni vel inn. Hjónaherbergi með góðum fataskápum og útgengi út á verönd. Svefnherbergi með fataskáp.
*Forstofa er rúmgóð með fataskápum, skóskápum og parketi á gólfi.
*Bílskúr er með geymslulofti að hluta. Innangent að utan og einnig innanfrá. Geymslupláss er til staðar í bílskúr og einnig eru útigeymslur á sólpalli.
*Gólfhiti er í öllum rýmum hússins.
Lóð og aðkoma:
*Eignin státar af
upphituðu hellulögðu bílaplani með þremur bílastæðum.
*Falleg
afgirt verönd í vestur fyrir framan húsið og afgirt
verönd með heitum potti og útigeymslum fyrir aftan hús sem bjóða upp á góð tækifæri til útivistar og grillveislna á sumrin.
Húsið er vel staðsett eign í huggulegu hverfi með grænum svæðum, göngustígum og stutt í leiksvæði. Hentar sérlega vel fyrir fjölskyldur sem vilja friðsælt umhverfi í nálægð við skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Skarðshlíðarskóli sem er leikskóli/grunnskóli er nálægt.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Halldórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 8486680 og gulla@logheimili.is
Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8988242, tölvupóstur ola@logheimili.is