LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali, kynna fallega tveggja herbergja íbúð á efstu hæð að Álfkonuhvarfi 25 með glæsilegu útsýni í 203 Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Þá fylgir íbúðinni jafnframt stæði í bílageymslu og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 68,7 m2, þar af er íbúðin 62,7 m2 og geymslan 6 m2.// AFHENDING SAMHLIÐA KAUPSAMNINGI //* Björt og falleg íbúð á efstu hæð.
* Stæði í bílageymslu.
* Þvottahús innan íbúðar
* Eignin er öll nýmáluð að innanNánari lýsing:Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu með flísum milli neðri og efri skápa. Bakaraofn, helluborð og háfur.
Stofa/borðstofa í opnu og björtu rými með flísalögðu gólfi , útgengt út á flísalagðar svalir með fallegu útsýni. Nýr gluggi og svalahurð.
Svefnherbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Baðinnrétting, skápur undir handlaug og til hliðar, upphengt salerni, rúmgóður sturtuklefi með glerþil.
Þvottahús með innréttingu og flísalögðu gólfi.
Geymsla staðsett í sameign hússins.
Stæði í bílageymslu: Merkt 02B19. Búið að setja upp tengi fyrir rafmagnsbíl.Hér að neðan er útlistun á helstu framkvæmdum síðastliðna ára:
* 2020 - Bílageymsla máluð.
* 2021 - Sameiginleg hjólageymsla og ruslageymsla málaðar.
* 2022 - Hleðsustöðvum fyrir rafmagnsbíla komið fyrir við hvert stæði í bílageymslu. Útisvæði að aftanverðu tekið í gegn, stétt hellulögð og komið upp aðstöðu fyrir sólbað og samveru.
* 2025 skipt um hitablásara í bílageymslu.
* 2026 Skipt um glugga sem þurfti og flest allir aðrir yfirfarnir .
* 2026 ný plejd ljósastýringu.Annað:
Virkilega vel staðsett og skemmtileg eign í þessu vinsæla fjölskylduvæna hverfi í Kópavogi. Stutt í verslanir og þjónustu s.s. grunnskóla og leikskóla og óspillta náttúru á Vatnsendahæð og að Elliðavatni. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is