** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **
TIL LEIGU: Nýlegt 51,2 m2 geymsluhúsnæði við Brúarfljót 18J í Mosfellsbæ. Góð lofthæð. Tvær innkeyrsluhurðir og ein inngönguhurð. Svæðið er allt malbikað og verður afgirt með tveimur rafdrifnum hliðum. Tvö einkastæði á lóð fylgja. Hiti og rafmagn er sameiginlegt. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. Laust til afhendingar fljótlega.
Húsin eru byggð úr samlokueiningum úr steinull og stáli, steingráum að utan og hvítum að innan. Gólf eru steypt og slípuð. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum. Sameiginlegur salerniskjarni er á svæði. Nýting á sameiginlegum bílastæðum fylgja öllum bilum en bílastæði í séreign fylgja ákveðnum bilum, þá staðsett fyrir framan viðkomandi bil. Sameiginleg sorpílat auk rafhleðslustöðva fyrir bíla.
Leiguverð er kr. 199.000 fyrir hvern mánuð, auk kr. 9.500 kr á mánuði í hússjóð. Leiguverð er verðtryggt. Innifalið í hússjóð er rafmagn, hiti, snjómokstur, lóðaumhirða, rekstur á sameiginlegu salernisaðstöðu og sorplosun. Einnig fylgir eigninni tvö bílastæði fyrir fram hurðirnar.