Fasteignaleitin
Opið hús:08. nóv. kl 16:00-16:20
Skráð 5. nóv. 2026

Heiðarhjalli 7

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
274.5 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
179.000.000 kr.
Fermetraverð
652.095 kr./m2
Fasteignamat
173.550.000 kr.
Brunabótamat
94.470.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 1994
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2061495
Landnúmer
114555
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
endurbættar að hluta
Frárennslislagnir
upprunar
Gluggar / Gler
upprunalegir
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Kvöð / kvaðir
Húsinu hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Meðal annars hefur rýmisskiptingu á jarðhæð verið breytt og er eitt herbergjanna þar skráð sem geymsla samkvæmt fyrirliggjandi teikningum. Möguleg útbúning aukaíbúðareiningar á jarðhæð er háð nánari athugun og eftir atvikum samþykki byggingaryfirvalda.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu glæsilegt og rúmgott parhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr við Heiðarhjalla 7 í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin stendur á fallegum útsýnisstað og nýtur óhindraðs útsýnis til suðurs, vesturs og austurs. Húsið einkennist af björtum og rúmgóðum alrýmum með aukinni lofthæð, glæsilegri hjónasvítu og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum á jarðhæð. Skjólgott útisvæði með timburverönd og heitum potti.

Hér er um að ræða einstaklega rúmgóða fjölskyldueign. Á efstu hæð er bjart og glæsilegt alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi ásamt suðursvölum. Á miðhæð eru hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi, tvö önnur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á jarðhæð eru þrjú herbergi, baðherbergi og innangengt í bílskúr. Jarðhæðin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á aukaíbúðareiningar.

Birt stærð eignarinnar er 274,5 fm samkvæmt skráningu HMS, þar af er íbúðarhluti 251,0 fm og innbyggður bílskúr 23,5 fm. Húsið er steinsteypt, byggt árið 1994 og stendur á gróinni lóð með góðri aðkomu og bílastæðum fyrir allt að þrjá bíla.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Nánari lýsing – miðhæð
Anddyri/hol
er rúmgott með fataskáp. Frá holinu liggur stigi bæði upp á efstu hæð og niður á jarðhæð, gólfhiti og flísar á gólfi.
Hjónasvíta er rúmgóð með fataherbergi og sérbaðherbergi. Upphengdur skápur í hjónaherbergi fylgir eigninni, gólfhiti og flísar á gólfi.
Fataherbergið er í dag nýtt sem vinnuaðstaða og jafnframt er fataskápur fyrir framan baðherbergið.
Sérbaðherbergi hjónasvítu, flísalagt að mesu með innréttingu ogquartz-borðplötu, upphengdu salerni, baðkari og rúmgóðri sturtu, gólfhiti.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt að mestu með fallegri innréttingu og quartz-borðplötu, upphengdu salerni og rúmgóðri sturtu með glervegg, gólfhiti. 
Þvottahús með góðu vinnuborði, stálvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara undir borði, flísar á gólfi.

Útgengt er frá stigapalli á milli miðhæðar og efstu hæðar út í skjólgóðan bakgarð þar sem eru timburverönd, sólpallar, skjólveggir og heitur pottur. 

Nánari lýsing – efsta hæð
Stofa og borðstofa
mynda bjart og rúmgott alrými með uppteknu lofti, innfelldri lýsingu, stórum gluggum og óhindruðu útsýni til suðurs. Vegghengdur skápur fylgir eigninni, parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með fallegri innréttingu, stórri eyju og granítborðplötum. Gott skápa- og vinnupláss, innbyggður búrskápur og tækjaskápur, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Spanhelluborð og setuaðstaða eru í eyju og gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Góður borðkrókur með útgengi á suðursvalir, gólfhiti og flísar á gólfi.
Sjónvarpsstofa er að hluta afmörkuð frá alrýminu með innbyggðum hillum, flísar á gólfi.
Suðursvalir með útgengi frá eldhúsi og fallegu, óhindruðu útsýni.

Nánari lýsing – jarðhæð
Forstofa
með fataskáp, flísar á gólfi.
Hol með stiga upp á miðhæð og innbyggðum skáp undir stiga, flísar á gólfi og parket á stiga.
Herbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi
 II og III með fataskápum og hefur verið opnað á milli herbergja (annað þeirra skráð sem geymsla á teikningum), parket á gólfi.

Bílskúr er 23,5 fm með gluggum, vaski og inntökum fyrir vatn og rafmagn. Innangengt er í bílskúr frá jarðhæð hússins.

Nettenging er í öllum herbergjum og uppsett öryggiskerfi frá Securitas með reykskynjurum, myndavélum, myndavél í dyrabjöllu, hurðarskynjurum og hreyfiskynjara.

Húsið er steinsteypt, byggt árið 1994, með máluðum útveggjum, járnklæddu þaki og timburgluggum og -hurðum. Aðkoma að húsinu er snyrtileg með hellulögðu bílaplani og stæðum fyrir allt að þrjá bíla, snjóbræðsla í bílaplani sem nýtir affallsvatn frá húsinu. 

Lóðin er gróin og falleg með hávöxnum trjágróðri við baklóð. Fyrir aftan húsið er óbyggt og skógi vaxið svæði sem skapar skemmtilega umgjörð og skjól. Bakgarðurinn er með timburverönd, sólpöllum, skjólveggjum og heitum potti. Útgengt er í garðinn frá stigapalli hússins og aðstaðan því þægileg og vel tengd íbúðarrýmunum. 

Hér er um að ræða einstaklega rúmgott og vel skipulagt fjölskylduhús á frábærum útsýnisstað í Suðurhlíðum Kópavogs. Björt alrými með aukinni lofthæð, glæsileg hjónasvíta, skjólgott útisvæði með heitum potti, innbyggður bílskúr og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar jarðhæðarinnar eru meðal helstu kosta eignarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is.

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
 

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/03/201351.900.000 kr.58.000.000 kr.268.3 m2216.175 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1994
23.5 m2
Fasteignanúmer
2061495
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.320.000 kr.

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10b (412)
Friðjón_vefur (1).jpg
Hafnarbraut 10b (412)
200 Kópavogur
65,5 m2
Fjölbýlishús
211
1191 þ.kr./m2
77.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b (411)
Friðjón_vefur (10).jpg
Hafnarbraut 10b (411)
200 Kópavogur
133,7 m2
Fjölbýlishús
413
1010 þ.kr./m2
134.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b (410)
Friðjón_vefur (8).jpg
Hafnarbraut 10b (410)
200 Kópavogur
114,4 m2
Fjölbýlishús
312
1005 þ.kr./m2
114.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10b (409)
Friðjón_vefur (4).jpg
Hafnarbraut 10b (409)
200 Kópavogur
64 m2
Fjölbýlishús
211
1140 þ.kr./m2
72.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin