Fasteignaleitin
Skráð 2. sept. 2026

Ártröð 7

SumarhúsVesturland/Akranes-301
45 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
28.900.000 kr.
Fermetraverð
642.222 kr./m2
Fasteignamat
25.900.000 kr.
Brunabótamat
30.750.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Byggt 1990
Garður
Pallur
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2104484
Landnúmer
133230
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðir að hluta.
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
Komin er tími til að skipta út nokkrum borðum á ofan á þakkanti. Rafmagnspotur er bilaður og hann lekur. Upptalning þessi þarf ekki að vera endanleg. Fasteignasala hefur ekki verið bent sérstaklega á aðra galla á eigninni.
Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Ártröð 7, 301 Akranes.

Fallegt 45 fm sumarhús með sólríkri og gróinni lóð í Svarfhólsskógi
Einstaklega fallegt og vel umgengið sumarhús sem stendur á 8.514 fm gróðursælli eignarlóð í landi Svarfhóls í Hvalfjarðarsveit (Svarfhólsskógi).
Svæðið er lokað með tveimur rafmagnshliðum (símahlið) sem tryggir gott næði og öryggi (vegur frá Vatnaskógi annarsvegar og frá Svarfhóli hinsvegar).


Lýsing:
  Forstofa: Þar er gott fatahengi.
  Baðherbergi: Snyrtilegri innréttingu með salerni og sturtuklefa. 
  Tvö svefnherbergi: Það stærra með tveimur rúmum og það minna með kojum.
  Svefnloft: Er lágt en nýtist vel. 
  Eldhús og stofa: Renna saman í eina heild og fallegt útsýni er yfir Svínadal og Laxá í Leirársveit. Eldhúsinnrétting er um 15 ára og lítur vel út. Úr stofu er hægt að ganga út á stóra timburverönd, þar á neðri palli er rafmagns pottur (er bilaður). Gott geymsluplás er að finna undir veröndinni. 
  Geymslur: Lokuð geymsla er við hlið forstofu og ca. 3 fm geymsla sem inngeng er af palli (er ekki inn í fermetratölu).
  Í sumarhúsinu eru öll gólf með spónaparketi á gólfi.

  Gott viðhald: Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin, að innan sem utan. Nýlega var skipt um vatnsinntak. Húsið stendur á steyptum súlum.

Lóð, sólpallur:
Stór og glæsilegur sólpallur með skjólgirðingu umlykur húsið.
Lóðin sjálf er kjarri vaxin og búið er að planta miklum trjágróðri. Frá eigninni er afar fallegt útsýni. Aðkoma er til fyrirmyndar og næg bílastæði eru við húsið. 

Möguleiki er á að fá innbú (fyrir utan persónulega muni) með í kaupum á eigninni eftir samkomulagi.
Árgjald sumarhúsafélagsins er um 60.000 kr.

Eignin Ártröð 7 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 210-4484, merkt 01-01, birt stærð 45.0 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Aðeins um 50 mínútna akstur er frá Reykjavík og hægt er að fá ódýrt veiðileyfi í Eyrarvatni, sem staðsett er í nálægð við sumarhúsið!

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjafell 25
Skoða eignina Eyjafell 25
Eyjafell 25
276 Mosfellsbær
59.9 m2
Sumarhús
413
750 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarás 6
Á einni hæð
Skoða eignina Tjarnarás 6
Tjarnarás 6
301 Akranes
55 m2
Sumarhús
43
725 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíð 19
Á einni hæð
Skoða eignina Hlíð 19
Hlíð 19
276 Mosfellsbær
49.5 m2
Sumarhús
312
907 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18
Skoða eignina Asparskógar 18
Asparskógar 18
300 Akranes
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin