Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Lindargata 39

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
103.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.500.000 kr.
Fermetraverð
1.115.942 kr./m2
Brunabótamat
65.970.000 kr.
Byggt 2014
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22979353
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 kynna fallega íbúð með útsýni og stæði í bílageymslu í Skuggahverfinu.
Lindargata 39 er glæsilegt fjölbýlishús sem byggt var árið 2014 í 2. og 3ja áfanga í Skuggahverfinu. Húsið stendur á eignarlóð ásamt húsunum við Vatnsstíg 16-22 en stór og vel skipulagður bílakjallari undir húsunum er sameiginlegur sem og fallegur garður á milli húsanna en þar er allur frágangur til fyrirmyndar.

Íbúðin sem um ræðir er er merkt 14-0203 við Lindargötu 39, hún er 103,5 fm. að stærð skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 95,8 fm. og sér geymsla á jarðhæð 7,7 fm. Þá fylgir eigninni stæði í lokaðri bílageymslu merkt 16B-24, vel staðsett með tilliti til lyftu og stærðar.
Nánari lýsing; Komið er inn í glæsilega sameign og með lyftu upp á 2. hæð, lyfturnar eru tvær, aðgangstýrðar þannig að eingöngu íbúar hverar hæðar hafa aðgengi að sinni hæð.
Íbúðin er glæsileg og vel skipulögð, hol/forstofa er með skápum við endann sem ná upp í loft og nýta rýmið til fullnustu.
Opið og glæsilegt alrými með aukinni lofthæð (2,75 m) rúma fallega setustofu, borðstofu og eldhús. Gólfsíðir gluggar eru á tvo vegu, austur og norður með frábæru útsýni út á Frakkastíg og út á sjóinn.
Stofurnar er rúmgóðar og í góðu flæði við vel búði eldhúsið. Innrétting frá GKS er með góðu hirsluplássi, vönduð eldhústæki frá Miele, tengi fyrir uppþvottavél og eyja sem opnast mót stofunni með aðstöðu fyrir 2-3 til að sitja við. Gólfsíðir gluggi í eldhúsinu og stofum gefa skemmtilegt yfirbragð og tryggja gott birtuflæði.
Herbergin eru tvö; Rúmgott hjónaherbergi með miklu skápaplássi og barnahbergi með einnig með fataskáp. Í herbergjunum eru gólfsíðir gluggar.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og góður sturtuklefi, innrétting með miklu skápaplássi og upphengt salerni. 
Þvottahús er innan íbúðarinnar, þar er innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurkara, hægt að hafa skolvask í innréttingu við hlið vélanna.
Íbúðin er einstaklega björt og falleg, vandað gólfefni, viðarparket í stofu, gangi og svefnherbergjum en flisar í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Gólfhiti er íbúðinni.
Í húsinu er loftskiptikerfi sem tryggir góð loftgæði þó gluggar séu ekki opnir um tíma.
Sér geymsla íbúðarinnar er 7,7 fm. að stærð staðsett í kjallara í sameign. Sameiginleg vagna og hjólageymsla er vel staðsett á 1. hæð sem einnig er læst og tengd við öryggiskerfi húsfélagsins.
Íbúðinni fylgi stæði í lokaðri bílageymslu þar sem góð aðstaða er m.a. til að þrífa bílinn. Góð aðkoma er að húsinu  fjölmörg, sérmerkt, bílastæði á lóðinni fyrir gesti og íbúa.
Þetta er vönduð eign í miðborginni - gott utanumhald og rekstur húsfélags í höndum húsvarðar. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Iðufell 4
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Iðufell 4
Iðufell 4
111 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
625 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Krummahólar 8 (410)
IMG_6740.JPG
Krummahólar 8 (410)
111 Reykjavík
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
567 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin