RE/MAX og Magnús Filip Sævarsson, löggiltur fasteignasali kynna: Skemmtilega þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í Sörlaskjóli 50 við sjávarsíðuna í Vesturbæ Reykjavíkur.Birt stærð eignarinnar er 77,8 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, skrifstofuhorn og geymslu.
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3-DSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISGengið er inn í flísalagða
forstofu.Úr forstofu er gengið inn á gang sem liggur að stofu og eldhúsi.
Rúmgott
hjónaberbergi með glugga sem snýr að sjávarsíðunni. Parket á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og baðkar með sturtu.
Stofa er með parket á gólfi og glugga sem snýr að sjávarsíðunni. Opið inn í eldhús.
Eldhús er snyrtilegt með flísum á gólfi og ljósri innréttingu.
Skrifstofuhorn er inn af eldhúsi.
Geymsla er inn af skrifstofuhorni undir útitröppum efri hæðar.
Innangengt er úr íbúð í sameiginlegt þvottahús.
Helstu endurbætur:Fyrri eigandi lét skipta um allar vatns- og ofnalagnir 2011/2012.
Gólfefni, innrétting og klósett endurnýjað 2017.
Allt gólfefni og gólflistar og innihurðir endurnýjað 2018. Ný eldavél 2018.
Þak endurnýjað, timbur, pappa, járn og þakrennur 2019.
Gluggar í hjónaherbergi endurnýjaðir 2019.
Borðplata, blöndurnartæki og vaskur í eldhúsi endurnýjað og settar veggflísar 2020.
Einnig eru til staðar nýjir gluggar í
stofu og eldhús sömu tegundar og settir voru í hjónaherbergi og afhendast þeir með eigninni.
Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fallegar gönguleiðir við Ægissíðu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Magnús Filip Sævarsson, löggiltur fasteignasali í síma
691-6434 eða magnus@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.