Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Þorrasali 17, íbúð 303, í Kópavogi.
Virkilega björt, rúmgóð og falleg 116,3 fm, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð, þar af er sér geymsla. Bílastæði í bílakjallara. Rúmgóðar yfirbyggðar svalir með svalalokun og frábært útsýni. Vandað fjölbýlishús, hannað af Teiknistofu Arkitekta, byggt árið 2014. Frábær staðsetning þar sem stutt er út í náttúruna og golfvöllur GKG er í göngufæri.Nánari lýsing:
Að innan skiptist íbúðin í forstofu, eldhús, hol, stofu, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Baðherbergi er flísalagt, upphengt wc, góð baðinnrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og glervegg. Á gólfum er vandað viðarparket. Í svefnherbergjum eru fataskápar. Eldhús og stofa í björtu og opnu rými. Smekkleg innrétting með vönduðum heimilistækjum og milli borðpötu og efri skápa er glerplata. Úr stofu er útgengt á svalir sem eru með svalalokun sem hægt er að opna að hluta.
Í kjallara er rúmgóð sér geymsla.
Sér bílastæði í bílageymslu á jarðhæð og þar er gert ráð fyrir hleðslustöð.
Húsið er uppsteypt, útveggir eru filtraðir og málaðir. Alls eru 26 íbúðir í sex klasaröðum og eru stigagangar sem skilja á milli þeirra. Sér inngangur er í hverja íbúð, aukin lofthæð, gluggar eru álklæddir timburgluggar. Bílageymsla er að hálfu niðurgrafin, sameign er snyrtileg þar sem sér geymslur íbúðanna eru, tæknirými, bílastæði og sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Innréttingar og skápar eru sérsmíðaðar frá Axis, heimilistæki frá AEG, innihurðir frá Birgisson og flísar frá Álfaborg.
Lóðin er öll mjög snyrtileg.
Hringið og bókið skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð