Fasteignaleitin
Skráð 19. jan. 2026

Grensásvegur 1A íb313

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
89.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.800.000 kr.
Fermetraverð
1.005.599 kr./m2
Fasteignamat
64.950.000 kr.
Brunabótamat
56.200.000 kr.
Mynd af Katla Hanna Steed
Katla Hanna Steed
Lögg. fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522180
Landnúmer
105655
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
7
Númer íbúðar
13
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Lóð
6,4
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Háborg fasteignasala og Jórunn lögg. fasteignasali kynna Grensásvegur 1A, íbúð 313, í 108 Reykjavík. Glæsileg 3ja herbergja íbúð með fallega innréttuðu alrými, eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og gengið út á svalir úr stofu. Stofa er rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum. Hjónaherbergið er einnig með gólfsíðum gluggum, það er mjög rúmgott og með góðum skápum. Barnaherbergið er bjart, einnig með gólfsíðum gluggum og góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt að hluta, með sturtu sem gengið er beint inní, óbein lýsing fyrir ofan sturtu, skúffu innrétting undir handlaug og spegill fyrir ofan handlaug einnig með óbeinni lýsingu. Sér þvottahús innan íbúðar. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum. Deilibílar í boði fyrir húsið og starfsfólk, bæði sendibílar og fólksbílar. Einnig eru hrað-hleðslustöðvar. Afhending samhliða kaupsamningi. 

Birt stærð eignar er 89,3 fm samkvæmt HMS, þar af er 7,6 fm geymsla. Ath: kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. Afhending samhliða kaupsamningi.

Nýr valkostur í fjármögnun fasteignaBRÚ 20%. Kaupendur geta nýtt sér nýjan sjóð sem styður þá með því að fjárfesta með þeim allt að 20% -25% af kaupverði.  Kynntu þér málið hér: FasteignaBRU.is

Helstu kostir lúxus íbúðar eru, sem þessi eign uppfyllir:
  • íbúðin er upphituð með gólfhita (hitastýring í íbúðunum)
  • gólfsíðir gluggar í íbúðinni
  • íbúðin glæsilega innréttuð með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
  • eldhúsinnréttingin er dökk eikar lituð með hvítum skápum
  • inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir í 260 cm
  • Stærstur hluti innveggja Hemga léttsteypusteinum
  • Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
  • nema á bað og þvottaherbergjum eru gólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm
  • Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
  • Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
  • Neysluvatnið með forhitara frágengið og tengt blöndunartækjum
  • Frábær staðsetning rétt við Laugardalinn 
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958

Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1A eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. Helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.

Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.

Um er að ræða glæsilega íbúð með svölum, íbúð með gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og menningu.

Deilibílar í boði: Deilibílar eru hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir eru aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. 

Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum. 

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is. 
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem falla ekki undir loka­útgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupendur standa straum af.
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin