ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Engjadalur 6, 260 Reykjanesbær, birt stærð 118,6 fm þar af 31,4 fm bílskúr.Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og bílskúr, staðsett á vinsælum stað í Innri-Njarðvík. Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergisgang með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Út frá stofunni er gengið út á rúmgóðan sólpall sem snýr til suðurs.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Pall Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Nánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð og tengist inn í þvottahús.
Þvottahús er innaf forstofu, mjög rúmgott með flísum á gólfi, góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er í rýminu.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri, fallegri innréttingu með quarts-steini á borði.
Stofa er opin við eldhús, með parketi á gólfi og útgengt út á sólpall.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu, upphengdu salerni og hvítri innréttingu.
Sólpallur er rúmgóður, snýr til suðurs og út í garð.
Bílskúr er skráður 31,4 fm.
Staðsetning er góð, enda eru leik- og grunnskóli í göngufæri, og aðeins um 25 mínútna akstur er á höfuðborgarsvæðið.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.