Hraunhamar fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega þriggja herbergja endaíbúð í nýbyggingu í Stekkjarbergi 11. Einstaklega góð staðsetning á grónum stað í Setbergshverfinu í Hafnarfirði. Stutt í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli og verslun í göngufæri.
Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Íbúðin er skráð 93,7 fm skv. HMS en þar af er 3,7 fm geymsla í sér húsi á lóð.
Nánari lýsing skv. teikningu:Forstofa með fataskápum.
Bjart opið alrými sem samanstendur af eldhús, borðstofu og stofu.
Útgengt frá
stofu út á rúmgóðar
svalir í suðurátt.
Eldhús með rúmgóðri eyju. Vandaðar innréttingar frá HTH og raftæki frá Ormsson. Kvartsteinn á borði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Útgengt frá eldhúsi út á svalir.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi með fataskáp.
Flísalagt
baðherbergi með glugga. Innrétting, upphengt salerni og walk in sturta. Innfelld blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Þvottahús með góðri innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.
Geymsla í sér húsi á lóð.
Húsið er byggt með forsteyptum einingum frá BM Vallá.
Næg bílastæði.Allar nánari upplýsingar veita:Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölustjóri í s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is
Einar Örn Ágústsson löggiltur fasteignasali s. 888-7979, einar@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.