Eignatorg kynnir: Eldra einbýlishús sem er timburhús sem byggt hefur verið í tveimur hlutum og stendur á 872,5 eignarlóð. Aðgengilegt væri að skipta húsinu upp í tvær íbúðir. Húsið stendur í u.þ.b. 9 mínútna akstursfjarlægð frá Vík.
Skv. skráningu Þjóðskrár er húsið 141,3 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi. Gangur með flísum á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísaplötum á veggjum, innréttingu og glugga. Gangur með plastparketi á gólfi. Eldhús með plastparketi á gólfi, fallegri innréttingu, borðkrók og gluggum á tvo vegu. Búr með dúk á gólfi, hillum og glugga. Þvottahús með glugga. Herbergi með plastparketi á gólfi. Hjónaherbergi með plastparketi á gólfi og skáp. Bakinngangur. Herbergi með dúk á gólfi. Herbergi með plastparketi á gólfi og skáp. Herbergi með plastparketi á gólfi og skáp. Stofa með gluggum á tvo vegu.
Kjallari er undir húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.