Fasteignaleitin
Skráð 18. nóv. 2026

Miðstræti 5

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
139.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
149.000.000 kr.
Fermetraverð
1.068.867 kr./m2
Fasteignamat
102.300.000 kr.
Brunabótamat
69.200.000 kr.
Mynd af Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Fasteignasali
Byggt 1907
Jarðhæð af 3
Garður
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2006613
Landnúmer
101944
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
- Sjá lýsingu
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Út frá borðstofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Einstaklega sjarmerandi og falleg, 139,4 fm, fjögurra herbergja hæð við rólega götu í Þingholtunum. Hæðin skiptist í anddyri, tvær stofur, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Gengið er út á vestur svalir frá borðstofu og búið er að teikna og grenndarkynna sólpall við íbúð til suðausturs. Aukin lofthæð, fallegir loftlistar, rósettur í loftum og furufjalir á gólfi setja fallegan svip á íbúðina. Hæðin er einstaklega vel staðsett og er í göngufjarlægð í alla þá þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Allar nánari upplýsingar veita Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og lögg. fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.is og Þorlákur Ómar Einarsson lögg. fasteignasali í síma 820 2399 eða thorlakur@fstorg.is

Nánari lýsing:

Samkvæmt eignaskiptasamningi er eignin skráð 139,4 fm, þar af 10,8 fm geymsla í kjallara.
Um er að ræða virðulegt hús í Þingholtunum sem er byggt árið 1907 af Sveini í Völundi og er arkitektúr hússins mjög sérstakur. Mikil lofthæð er í íbúð og fallegar furufjalir eru á gólfum íbúðar. Úr sameign er komið inn í anddyri þar sem gengið er inn í svefnherbergi og borðstofu með útgengt á vestur svalir. Stofa og borðstofa eru einstaklega rúmgóðar og er opið á milli þeirra. Gengið er úr borðstofu og inn í eldhús með hvítum innréttingum frá Fanntófell með góðu skápaplássi og viðarlitaðri borðplötu. Stór eyja er í miðju eldhúsi, með skúffum. Inn af eldhúsi er búr. Við eldhús er annað anddyri og sér inngangur í íbúðina sem gengið er inn um að aftanverðu húsinu. Búið er að teikna og grenndarkynna pall við þann inngang. Svefnherbergin eru bæði stór, annað með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með hvítri innréttingu frá Fanntófelli og viðarlitaðri borðplötu, upphengdu salerni og sturtu. Í sameign er sér geymsla (10,8 fm) og sameiginlegt þvottahús. Húsið stendur á fallegri lóð með nýlegum garði og sólpalli.

 Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið gert: 
Bárujárnsklæðning endurnýjuð 2018
Gluggar og gler endurnýjað 2015-2018
Þak yfirfarið
Nýlegur garður með sólpalli
Nýleg sorpgeymsla á lóð
Nýleg girðing
Nýlegt hjólaskýli/geymsla

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/03/201992.850.000 kr.65.000.000 kr.139.4 m2466.284 kr.Já
16/12/201537.150.000 kr.53.250.000 kr.120.1 m2443.380 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ánanaust 3 (Vesturvin 2) 404
Opið hús:18. nóv. kl 16:30-17:00
stebbi_vefur (24).png
Ánanaust 3 (Vesturvin 2) 404
101 Reykjavík
111,7 m2
Fjölbýlishús
311
1092 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 39
Skoða eignina Laugavegur 39
Laugavegur 39
101 Reykjavík
120,2 m2
Fjölbýlishús
322
773 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvallagata 22
Kjallaraíbúð
Ásvallagata_22-28.jpg
Skoða eignina Ásvallagata 22
Ásvallagata 22
101 Reykjavík
93,8 m2
Fjölbýlishús
312
840 þ.kr./m2
78.800.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7d (319)
fridjon_vefur-(1).jpg
Eirhöfði 7d (319)
110 Reykjavík
113,6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin