Fasteignaleitin
Skráð 17. apríl 2024
Deila eign
Deila

Norðurtún 1

EinbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
227.5 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
307.253 kr./m2
Fasteignamat
47.100.000 kr.
Brunabótamat
92.650.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Þvottahús
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2130811
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
þarfnast lagfæringar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Þakkantur þarfnast lagfæringar og búið að fá tilboð í það verk. 
Gallar
Einhver halli er á gólfi efri hæðar í stofu en stálbiti hefur verið settur í bílskúr. Skemmd er á eldhúsgólfi við vask. Skipta þarf um einhverja lista við glugga að utan. Þakkantur þarfnast lagfæringa en búið er að fá tilboð í það verk. 
Fasteignamiðlun kynnir eignina Norðurtún 1, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0811 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurtún 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0811, birt stærð 227.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða einbýlishús með stórum garði og frábæru útsýni. Eignin skiptist í efri og neðri hæð með bílskúr. Efri hæð samanstendur af stofu, eldhúsi, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, fimm svefnherbergjum og andyri. Gengið er upp steyptan stiga með timbur handriði á steyptan pall við útidyr. Andyri er mjög rúmgott með fataskáp og flísum á gólfi. Baðherbergi er inn af andyri með gólftengdu klósetti, vask og flísum á gólfi. Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð með miklu gluggaplássi og sérútgang út á pall í garði. Parket er á gólfi. Eldhús liggur við stofu og er með hvítum skápum og viðarborðplötu. Mikið skápapláss er í eldhúsi með efri og neðri skápum, plastparketi á gólfi og rúmgóðum borðkrók. Einnig er aflokað búr/geymsla með glugga og opnanlegu fagi. Þvottahús er flísalagt með sérútgang og glugga með opnanlegu fagi. Svefnherbergisálma er með fimm svefnherbergjum og baðherbergi. Gangurinn er með parket á gólfi og svefnherbergin eru misstór með parket á gólfi. Hjónaherbergi er með sérútgang út í garð. Baðherbergi er með nuddbaðkari, sturtuklefa, vask, innréttingu og gólftengdu klósetti. Flísar eru á gólfi. Neðri hæð eignarinnar er að hluta til óklárað en grafið var út úr kjallara og jarðvegur lagður og járnabundinn en eftir á að steypa gólf að hluta. Neðri hæð samanstendur því að bílskúr og geymslu. 
Garður er rótgróinn með miklum gróðri og stórum palli aftan við hús. Vel hefur verið hugað að garðinum. Plan fyrir framan bílskúr er möl. 

Nánari lýsing: 
Eldhús: hvítar innréttingar með efri og neðri skápum og viðar borðplötu. Flísar eru á milli skápa. Plast parket er á gólfi. Vaskur, eldavél, bökunarofn og háfur. 
Búr/geymsla: Búr er inn af eldhúsi með miklu hilluplássi, glugga og opnanlegu fagi. Timburveggur er á milli eldhúss og búrs. 
Þvottahús: er einnig inn af eldhúsi með flísum á gólfi. Sérútgangur er út á pall að framan úr þvottahúsi. Gluggar með opnanlegu fagi. 
Stofa/borðstofa: er samliggjandi við eldhús einnig aflokuð með timburveggjum. Stofa er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Útgangur er úr stofu út á pall í garði bak við eignina. 
Svefnherbergi: eru fimm talsins og eru misstór. Hjónaherbergi er með sérútgang út í garð bak við eignina. 
Baðherbergi: eru tvö annað inn af anddyri sem er lítið með flísum á gólfi, vask og klósetti. Hitt er stærra og er staðsett inn á svefnherbergisgangi. Á því er baðkar og frístandandi sturtuklefi, hvít innrétting, vaskur og gólftengt klósett.
Bílskúr: er steyptur með bílskúrshurð. Inntaki fyrir vatn er í bílskúr. Búið er að grafa stærra rými sem búið er að undirbúa en á eftir að steypa gólfflöt. Mikið geymslurými er á neðri hæð en möguleiki er á að bæta við gluggum og því hægt að bæta við herbergjum. 

Sérútbúin geymsla er með sérinngang sem hugsuð var fyrir sorpgeymslu við hlið bílskúrs.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/12/202132.150.000 kr.25.000.000 kr.227.5 m2109.890 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 59
Skoða eignina Suðurgata 59
Suðurgata 59
580 Siglufjörður
211.5 m2
Einbýlishús
625
331 þ.kr./m2
70.000.000 kr.
Skoða eignina Álfhóll 4
Skoða eignina Álfhóll 4
Álfhóll 4
640 Húsavík
183.9 m2
Einbýlishús
623
378 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Grænamýri 2
Skoða eignina Grænamýri 2
Grænamýri 2
600 Akureyri
199.3 m2
Fjölbýlishús
615
346 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 128
Þórunnarstræti 128
600 Akureyri
169.2 m2
Fjölbýlishús
615
413 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache