Fasteignaleitin
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:30
Skráð 18. feb. 2026

Blönduhlíð 13

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
98.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
946.993 kr./m2
Fasteignamat
82.450.000 kr.
Brunabótamat
51.600.000 kr.
Mynd af Vilborg Gunnarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Löggiltur Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030438
Landnúmer
107098
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Nýr klóakstammi.Skólplögn fóðruð 2019/2020 að sögn seljanda
Gluggar / Gler
Endurnýjað f.einhverjum árum að sögn seljanda
Þak
Endurnýjað járn og pappi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
33,33
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugað er að mynda lögn frá brunni.  Það verður greitt af seljanda í samræmi við hlutfall eignar í húsi.  Einnig ef eitthvað þarf að framkvæma að mati þess sem myndar lögnina.  Það greiðir seljandi í hlutfalli við eignarhluta í húsi.
Gallar
Handklæðaofn á baðherbergi virkar ekki sem skyldi að sögn seljanda.
Domusnova og Vilborg kynna nýtt á einkasölu:
MJÖG FALLEG 4RA HERBERGJA HÆÐ Í HLÍÐUNUM.
Eignin er einstaklega björt og skemmtileg í fallegu húsi sem steinað var fyrir u.þ.b. 10 árum.
Íbúðin skiptist í tvær stofur, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, hol og geymslu.

Í húsinu eru fjórar íbúðir, tvær hæðir, kjallari og ris.
Nánari lýsing:
Komið er inn í sameiginlega forstofu þar sem gengið er upp fallegan bogalagaðan stiga.
Framan við inngang í íbúð er góður fataskápur.
Hol: Komið er inn í fallegt hol sem tengir vistarverur saman.
Stofa með fallegum glugga til suðurs og austurs. Rósetta í lofti.
Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri ljósri innréttingu, keramik helluborð og innbyggð uppþvottavél. Eikarparket á gólfi.
Borðstofa með útgengi á suðursvalir og glugga til suðurs. (Hægt væri að gera borðstofu að herbergi).
Hjónaherbergi  er rúmgott með góðum skápum.
Svefnherbergi II er einnig rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi með sturtu og sturtugleri.  Góð baðinnrétting og upphengt salerni. Flísar á gólfi.
Gólfefni íbúðar er eikarparket á öllum rýmum nema á baðherbergi þar sem eru flísar.
Geymsla:  Sér geymsla íbúðar í kjallara.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara þar sem hver íbúð er með sitt tengi f. þvottavél og þurrkara.
Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár en neðangreindar framkvæmdir hafa átt sér stað að sögn seljanda:
  • Skipt um rafmagnstöflu 2011.
  • Þak málað og yfirfarið 2012.
  • Skipt um allar útihurðar í húsinu 2016.
  • Húsið viðgert að utan og endursteinað 2016 og sama ár var skipt um flesta glugga í kjallara og á 1. hæð.
  • Skólplagnir og frárennsli var yfirfarið og lagfært þar sem við á og fóðrað 2019-2020.
  • Skipt um glugga í risi 2021.
  • Skipt um þakrennur 2023.
  • Drenað kringum hús 2025.
  • Nýr skólpstammi 2025.
Bílastæði á lóð í innkeyrslu eru sameiginleg með íbúð á 1.hæð.
Einstaklega falleg eign sem vert er að skoða á þessum vinsæla stað í hlíðunum.

Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/07/201843.000.000 kr.51.900.000 kr.98.1 m2529.051 kr.
30/06/201737.650.000 kr.54.000.000 kr.98.1 m2550.458 kr.
30/11/200720.460.000 kr.30.400.000 kr.98.1 m2309.887 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Raðhús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin