Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2026

Miklabraut 70

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
62.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.400.000 kr.
Fermetraverð
873.194 kr./m2
Fasteignamat
48.950.000 kr.
Brunabótamat
32.600.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1947
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030562
Landnúmer
107117
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurn 2020
Raflagnir
Tafla í sameign endurnýjuð
Frárennslislagnir
2020-2026 sjá lýsingu eignar
Gluggar / Gler
Endurnýjað í íbúð 2023
Þak
Sjá nánar í lýsingu eignar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **

Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð við Miklubraut 70 í Reykjavík. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, m.a. hafa allir gluggar í íbúðinni verið endurnýjaðir, baðherbergi endurbætt og eldhús endurnýjað af fyrri eiganda. Þá hefur verið farið í umfangsmiklar framkvæmdir við frárennslis- og skólplagnir hússins.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 62,3 fm sem skiptist í íbúðarrými 59,9 fm og geymslu 2,4 fm. Geymslan er staðsett við hlið íbúðarinnar og nær undir stiga og er nýtanlegur gólfflötur hennar því meiri en skráðir fermetrar gefa til kynna.

*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**  HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI - ÁN HÚSGAGNA

Innan íbúðar eru eitt rúmgott svefnherbergi, björt og rúmgóð stofa, eldhús, baðherbergi og miðrými/hol.
Nánari lýsing eignar:
Miðrými/hol: Komið er inn í miðrými íbúðarinnar með parketi á gólfi og þaðan er aðgengi að öðrum rýmum eignarinnar.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með glugga til suðurs og parketi á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað af fyrri eiganda 2021. Þar eru góðar innréttingar, veggfast háborð, gluggi er til suðurs og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi, glugga til norðurs og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með flísalagðri sturtu, góðri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi. Flísar eru á gólfi. Baðinnrétting var endurnýjuð árið 2021 og árið 2026 voru lagðar nýjar flísar á gólf og salerni endurnýjað.
Geymsla: Sérgeymsla íbúðar, skráð 2,4 fm, er staðsett við hlið íbúðarinnar. Geymslan nær undir stiga og er nýtanlegur gólfflötur því stærri en skráðir fermetrar gefa til kynna.
Sameign: Í sameign er snyrtilegt þvottahús þar sem hver íbúð er með sín tæki. Einnig er sameiginleg hjólageymsla þar sem búið er að endurnýja útidyrahurð og glugga.  Stigagangur hússins hefur nýlega verið málaður og skipt hefur verið um póstkassa.
Endurbætur og framkvæmdir:
Töluvert hefur verið farið í endurbætur á íbúðinni og húsinu undanfarin ár, m.a.:
2020 – Skólplögn undir húsinu mynduð og skipt um vinstri legg ásamt vatnslögnum.
2021 – Baðinnrétting sett upp, eldhús endurnýjað og gólefni (parket) endurnýjað af fyrri eiganda
2022 – Nýjar þakrennur settar upp (Þakklæðning á suðurhlið endurnýjuð fyrir tíð seljanda. Semsagt fyrir 2022)
2023 – Allir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir.
2025 – Fallstammi í frárennsli lagaður.
2026 – Baðherbergi endurbætt, nýjar flísar lagðar á gólf og salerni endurnýjað.
2026 – Skipt um skólplagnir undir gólfplötu.
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð sem hefur fengið töluverðar endurbætur á síðustu árum. Stórt svefnherbergi, rúmgóð stofa og bjart eldhús gera eignina að góðum kosti fyrir einstaklinga, pör eða fyrstu kaupendur.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% ef kaupandi er lögaðili, af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. samkvæmt gildandi gjaldskrá.
· Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/07/202231.350.000 kr.44.900.000 kr.62.3 m2720.706 kr.Já
18/12/202029.250.000 kr.28.500.000 kr.62.3 m2457.463 kr.Já
04/09/201211.550.000 kr.14.489.000 kr.62.3 m2232.568 kr.Já
17/10/200712.910.000 kr.15.900.000 kr.62.3 m2255.216 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 85
Opið hús:29. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Njálsgata 85
Njálsgata 85
101 Reykjavík
70.4 m2
Fjölbýlishús
412
950 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42C
Diddi_vefur (71).jpg
Skoða eignina Grandavegur 42C
Grandavegur 42C
107 Reykjavík
76 m2
Fjölbýlishús
211
947 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 13 íbúð 108
Hleðslustöð
Mánatún 13.jpg
Mánatún 13 íbúð 108
105 Reykjavík
105.1 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin