Fasteignaleitin
Skráð 7. ágúst 2025

SPÁNAREIGNIR - Algorfa

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
490 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
94.250.000 kr.
Fermetraverð
192.347 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
200988799
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS Á GÓÐUM STAÐ* - *GESTAHÚS OG STÓR BÍLSKÚR* *1.375fm lóð*
Glæsilegt einbýlishús með veglegu sérstæðu gestahúsi í Algorfa/La Finca, vinsælum stað ca. 30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Fjölskylduhús sem tekur vel á móti þér, og tilvalið til að eyða góðum stundum í fríinu eða til að búa í allt árið.
Stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði, golf, tennis, heilsugæslu og fleira sem gerir dvölina á Spáni þægilega og skemmtilega.
Hér má njóta hins afslappaða spænska lífsstíls með hefðbundnum spænskum hátíðum, vikulegum matarmörkuðum með ferskum afurðum og alls þess sem gerir lífið við Miðjarðarhafið svo notalegt og skemmtilegt.
Auðvelt aðgengi að hraðbraut sem tryggir góðar samgöngur.
Einstakt útsýni yfir appelsínu- og sítrónuekrur, stór lóð með einkasundlaug og sérstæðu gestahúsi.
Lokaður stór bílskúr þar sem hægt er að koma fyrir 2-3 bílum.

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. sími 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is


Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Glæsilegt aðgengi að húsinu. Við inngang tekur á móti þér bjart og rúmgott alrými, borðstofa opin við stórt og bjart eldhús með nýlegri innréttingu. Gestasnyrting við inngang. Stofan er stór og björt og með útgengi út í garðinn. Frá eldhúsi er einnig gott aðgengi út á verönd með góðri grillaðstöðu.
Á jarðhæðinni eru einnig tvær stórar svefnherbergissvítur, báðar með sér baðherbergi og önnur með góðu fataherbergi.
Auk þess er sér þvottahús með góðu útgengi út í garðinn.
Stór einkasundlaug er í garðinum.

Efri hæð:
Stórt svefnherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi.
Skrifstofa með möguleika á að bæta við öðru svefnherbergi

Gestahús:
Sérinngangur og fullkomlega sjálfstæð eining.
Stór stofa, eldhús, hjónaherbergi með baðherbergi og walk-in fataskáp.
Möguleiki að minnka stofurými og bæta við öðru svefnherbergi.
Möguleiki er á að nýta gestahúsið fyrir ýmis konar starfssemi.

Lóð og útisvæði
Stór lóð, einstaklega vel hirt og sólrík allan daginn.
Lóðin er sérlega vel skipulögð með skemmtilegum setsvæðum og notalegum hornum til að njóta útiverunnar frá morgni til kvölds.
Ávaxtatré og fallegar plöntur eru í garðinum, sem er sérlega vel hirtur með gömlum ólívutrjám, sem klippt eru eins og listaverk.
Rafdrifið innkeyrsluhlið og bílastæði fyrir a.m.k. 2 bíla
Rúmgóður bílskúr fyrir 2 bíla til viðbótar auk geymslu.

Staðsetning og aðstaða
Íþróttaaðstaða og tennis klúbbur í næsta nágrenni.
La Finca golfvöllurinn í aðeins 3 mínútna akstursleið.
Ca. 15 mínútna akstur á hinar frábæru strandir í Guardamar del Segura
20-30 mínútna akstur á Alicante flugvöll.

Hér er um að ræða fallega og hlýlega lúxusvillu þar sem hvert smáatriði skiptir máli og er vel úthugsað af mikilli natni.Allt er vel útfært, bæði innan- og utandyra, og hefur verið vandlega hannað og innréttað með áherslu á gæði og fegurð. Þetta er hin fullkomna fjölskyldueign fyrir þá sem vilja njóta spænska lífsstílsins í fallegu og friðsælu umhverfi.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á mjög smekklegan máta.
Húsgögn, rafmagnstæki og húsbúnaður fylgir með.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, stutt frá nýja og flotta klúbbhúsinu á La Finca golfvellinum,  5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ennfremur er stutt í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa, Benijofar og Ciudad Quesada.

Verð 650.000 Evrur. (94.250.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, bílskúr, útsýni, golf, gestahús,
Svæði: Costa Blanca, La Finca, Algorfa,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
200988799

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmaland 16
a Bjarmaland 16. framan copy.jpg
Skoða eignina Bjarmaland 16
Bjarmaland 16
108 Reykjavík
532.8 m2
Einbýlishús
956
Fasteignamat 384.550.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Santa Rosalia Spánn
Santa Rosalia Spánn
Spánn - Costa Blanca
210 m2
Einbýlishús
433
472 þ.kr./m2
99.135.000 kr.
Skoða eignina Hverafold 26
Á einni hæð
Hleðslustöð
a Hverafold 26.jpg
Skoða eignina Hverafold 26
Hverafold 26
112 Reykjavík
200.2 m2
Raðhús
624
749 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Hveralind 10
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hveralind 10
Hveralind 10
201 Kópavogur
143 m2
Raðhús
413
1033 þ.kr./m2
147.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin