Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2023

Melbær 41

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
278.8 m2
10 Herb.
7 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
609.397 kr./m2
Fasteignamat
118.500.000 kr.
Brunabótamat
122.760.000 kr.
GS
Geir Sigurður Jónsson
Tengiliður seljanda
Byggt 1979
Svalir
Fasteignanúmer
F2045711
Landnúmer
111266
Húsgerð
Raðhús
Númer íbúðar
41
Svalir

Þriggja hæða raðhús með frábæru útsýni, bílskúr og íbúð í útleigu frábærum stað við íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug.

Eignin er þriggja hæða raðhús með bílskúr og auka íbúð í kjallara á frábærum stað rétt við íþróttasvæði Fylkis,  Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug. Gróinn og skjólgóður suðurgarður og mikið útsýni er frá eigninni. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á ytra byrði raðhúsalengjunnar, og meðal annars hefur húsið verið klætt að hluta, skipt um glugga og gler á öllum stórum gluggum á öllum hæðunum og skipt um þakjárn. Samkvæmt FMR er birt stærð eignar 278,8 fm, þar af er íbúðarhluti 256 fm , 2. herbergja íbúð í kjallara og sérstæður bílskúr 22,8 m2 með góðu geymslulofti. Íbúðin í kjallaranum er skráð sem hluti af heildareigninni og á sama fastanúmeri. 
Fasteignamat 2025 er 120.800.000 kr.

Nánari lýsing á jarðhæð.

  • Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
  • Tvö svefnherbergi með parketlögðu gólfi.
  • Eldhús samliggjandi með stofu. Parket á gólfi.
  • Gestasalerni nýlega uppgert, vaskur á skáp, sturta, flísar á gólfi og veggjum.
  • Stofa og borðstofa eru samliggjandi, bjartar og rúmgóðar með miklu útsýni, útgengt á stórar suðursvalir, parket á gólfi.

    Efsta hæð.
  • Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
  • Sjónvarpsrými/stofa með arni og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.
  • Baðherbergi með flísalögðu gólfi, eldri innréttingu, baðkari, sturtuklefa og stórum glugga.

    Kjallari.
  • Sameiginleg forstofa fyrir þvottahús og kjallaraíbúðina.
  • Kjallaraíbúðin skiptist í:
  • Tvö svefnherbergi með parket á gólfi.
  • Eldhús með hvítri innréttingu og flísum á gólfi.
  • Stofa með flísum og parketi.
  • Baðherbergi með sturtu og geymslu.
  • Salerni með vask.

    Á undanförnum árum hefur húsfélagið í lengjunni staðið fyrir umfangsmiklum endurbótum og viðhaldi á ytra byrði lengjunnar.
    Árið 2017 var m.a ráðist í eftirfarandi framkvæmdir.
  • Endurnýjun þakjárns, aluzink með pappa
  • Endurnýjun niðurfallsröra
  • Endurnýjun þakrenna
  • Endurnýjun á klæðningu þakkants og áfellum frá þakrennu og framan á þakkant
  • Málun og endurbætur á þakkanti.

    Árið 2019-2020 var m.a. ráðist í eftirfarandi
  • Nýir gluggar settir í suðurhlið (stóri glugginn á hverri hæð)
  • Klæðning sett á suður- og austurhlið
  • Glugga og hurðakarmar málaðir á suður- og austurhlið
  • Svalagólf máluð og sílanböðuð.

    Sumar 2021 var óklæddur hluti hússins (vesturgafl og norðurhlið) háþrýstiþveginn, múrskemmdir lagaðar og málaður.

    Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla sem og íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug, mikið og fallegt útsýni.

Eignin er auglýst af eiganda en frágangur verður í höndum löggilts fasteignasala eða lögmanns með sérþekkingu á frágangi húsnæðissamninga.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 37
251024_474_Vorbraut_T_ arkitektar_03 INT.jpg
Skoða eignina Vorbraut 37
Vorbraut 37
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
634
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 29
251024_474_Vorbraut_TÓ arkitektar_01 FACADES.jpg
Skoða eignina Vorbraut 29
Vorbraut 29
210 Garðabær
269.3 m2
Raðhús
635
850 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 2
303 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 2
Steinhöfði 2
110 Reykjavík
88.7 m2
Fjölbýlishús
312
957 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
603 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
150.1 m2
Fjölbýlishús
412
932 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin