Lind Fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir við Kársneshöfn. Íbúðirnar eru eingöngu sýndar í einkasýningu. Bókaðu skoðun hjá sölumönnum okkar.
Ómar Hvanndal - omar@fastlind.is / S. 832-3200
Lára Þyri Eggertsdóttir – lara@fastlind.is / 899-3335
Guðrún Antonsdóttir - gudrun@fastlind.is / 621-2020
Íbúð 507: Glæsileg þakíbúð með einstöku útsýni til allra átta. Íbúðin einkennist af björtum og opnum rýmum, aukinni lofthæð og stórum gluggum sem njóta birtu og útsýnis til fulls.
Alrýmið sameinar stofu, borðstofu og eldhús í glæsilega heild með góðu flæði milli rýma. Eldhúsið er með stórri eyju, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Úr alrými er útgengt á rúmgóðar suðurþaksvalir sem skapa skemmtilegt útisvæði með fallegu útsýni og góðum sólskilyrðum. Möguleiki er á að setja upp heitan pott á svalir og arin í stofu.
Íbúðin er búin tveimur svefnherbergjum. Hjónasvítan er í sérálmu með tveimur fatarýmum og innangengu rúmgóðu baðherbergi þar sem hægt er að ganga út á aðrar suðurþaksvalir. Hitt svefnherbergið er við alrýmið og er rúmgott. Þaðan er útgengt á sérsvalir með sjávarsýn til vesturs. Jafnframt er sjónvarpsstofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, annað baðherbergi og sérþvottahús og góð forstofa innan íbúðar.
Auglýst verð miðaðst við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost á að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðina afhenta fullkláraða án megingólfefna. Verð miðað við slík skil er 315.000.000. Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.
Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi. Íb’uðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðu skipulagi.
Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem mun glæða höfnina lífi.
Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesrurbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.
Þægindi og góð innivist eru í fyrirrúmi og hönnun bygginganna, þar sem valin eru vönduð byggingarefni sem tryggja heilnæmt og nærandi umhverfi. Íbúðirnar útfærðar eftir tveimur hönnunarþemum sem nefnast Ylur og Steinn.
Í íbúðunum verða innréttingar frá Parka eða Voke III og heimilistækin frá Siemens en tækin frá þeim hafa þegar fest sig í sessi fyrir gæði og endingu. Það má nefna að helluborðið er með innbyggða viftu og hefur möguleika á þráðlausri fjarstýringu.
Í eldhúsi verða ýmist sambyggðir baksturs- og örbylgjuofn, frystir og vínkælir.
Þá verður hússtjórnunarkerfi, kallað free at home, þar sem íbúar geta stýrt meðal annars hitastigi, ljósum og gardínum í íbúðinni. Hver íbúð fær síðan til sín tæknimann til þess að stilla og læra á búnaðinn.
Allar íbúðir eru búnar sér loftskiptikerfi sem stuðlar að betri loftgæðum á hverjum tíma. Auk gólfhita.
Allar nári upplýsingar veita :
Ómar Hvanndal - omar@fastlind.is / S. 832-3200
Lára Þyri Eggertsdóttir – lara@fastlind.is / 899-3335
Guðrún Antonsdóttir - gudrun@fastlind.is / 621-2020
**Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma**