Vel skipulagða og fallega 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð, auk stæðis í bílageymslu, við Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi.
* Mjög fallegt útsýni
* Stæði í bílageymslu
* Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug og alla þjónustu
* Vel skipulögð íbúð
Allar nánari upplýsingar um eigna veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu inga@palssonfasteignasala.is
ww.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Íbúðin er skráð 110 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands og þar af er bílageymsla Forstofa með skáp og parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð með fallegu útsýni til sjávar og útgengni á 16,0 fermetra svalir til norðurs þaðan sem nýtur mjög fallegs útsýnis út á sjóinn, að Esjunni. Parket á gólfi.Eldhúsið er í björtu rými með stofunni, gott skápapláss og parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum, útgengni út á lóðina og parket á gólfi.Barnaherbergi er bjart með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari,nýlegu sturtugleri og flísum í hólf og gólf.
Geymsla/þvottahús er innan íbúðarinnar.
Nýtt teppi á alla stigagangana 2025.Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni, lakkað gólf og nýjar sameiginlegar vélar.
Einnig er á sömu hæð rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.
Merkt stæði í bílageymslu við Austurströnd 2-4.
Húsið hefur fengið eftirfarandi viðhald á undanförnum árum, skv. upplýsingum frá húsfélagi:
Utanhússframkvæmdir árið 2019, þar sem skipt var um járn á þaki, sprungu- og steypuviðgerðir, útskipti á hluta glugga ásamt heilmálun á húsinu.
Sumarið 2023 var farið í endurbætur á tröppum og hitalögnum í þeim, auk endurnýjunar á dreni að vestanverðu.
Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla, Eiðistorg og sundlaug Seltjarnarness.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.