Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Kléberg 14, Þorlákshöfn, glæsilega 82,5m2 neðri sérhæð með 2 svefnherbergjum. Húsið er allt hið snyrtilegasta og er nýmálað að utan!
* Allar nánari upplýsingar má fá í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *
Íbúðin telur:
* Flísalagt anddyri með flísum á gólfi og góðum skáp.
* 2 rúmgóð svefnherbergi. Fataskápar eru í hjónaherbergi.
* Stofu þaðan sem utangengt er á nýjan sólpall.
* Fallegt eldhús. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél fylgja.
* Fallegt harðparket er á gólfum í stofu, eldhúsi, svefnherbergjum og á gangi.
* Baðherbergi með sturtu og skáp undir vask. Flísar á gólfi og veggjum.
* Þvottahús með skápum og flísum á gólfi.
* Garðurinn er uppgróinn.
* Nýtt járn er á þaki hússins.
** Sjón er sögu ríkari !
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
815 | 78.5 | 36,9 | ||
900 | 79.8 | 38 |