Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja fjölskylduíbúð að Engjaseli 12 í Seljahverfinu. Eignin er skráð 114,1 fm. og skiptist í anddyri, hol/gang, eldhús, gott alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu, 3-4 svefnherbergi (fyrrum eigendur hagnýtu borðstofuna sem svefnherbergi), baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu innan sameignar. Falleg fjölskyldueign á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stór garður er bak við húsið. Stutt er í leik- og grunnskóla, og alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isNánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í
harðparketlagt anddyri með stórum innbyggðum fataskápum.
Hol/gangur: Innan af anddyri er parketlagt hol eða svefnherbergisgangur.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er búið háum og rúmgóðum fimmföldum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru 2-3 parketlögð svefnherbergi. Fyrri eigendur hagnýttu borðstofuna sem svefnherbergi og auðvelt er að setja upp hurð.
Eldhús: Eldhúsið er búið ljósri innréttingu með neðri- og efriskápum, grárri borðplötu, eldavél og stæði fyrir uppþvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi og parket á gólfi.
Stofa: Stofan er mjög rúmgóð með parketi á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofan með parketi á gólfi. Frá borðstofu er útgengt út á svalir. Fyrrum eigendur hagnýttu borðstofuna sem barnaherbergi og auðvelt er að setja upp hurð.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Útbúið baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, endurnýjaðri innréttingu með handlaug og neðriskápum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Innan sameignar er góð sérgeymsla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er innan sameignar.
Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isFáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Opinber gjöld geta breyst):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.