LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna virkilega fallega fjögurra herbergja útsýnisíbúð íbúð á tveimur hæðum á besta stað í Garðabæ ásamt stæði í lokaðri bílageymslu.
Tveir sérafnotareitir , annar til vesturs , og hinn til austur, en einnig sameiginlegur garður sem er alveg lokaður. Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 115 m2 auk stæði 20,5 m2 stæði í bílageymslu eða samtals: 135,5 m2Skipulag íbúðar: forstofa, alrými með stofu, borðstofu ,eldhúsi, þrjú svefnherbergi , baðherbergi, þvottahús/geymsla og hol . Í sameign er stæði í bílageymslu, hjóla- og vagnageymsla.
* 2019 var eldhúinnrétting ásamt tækjum endurnýjuð
* 2020 var baðherbergi endurnýjað að miklu leyti Nánari lýsing eignar Forstofa með máluðum flísum á gólfi.
Hol með parketlögðu gólfi og innbyggðum fataskáp.
Eldhús og stofa er í opnu rými með endurnýjuðu eldhúsi með fallegri hvítri innréttingu með góðum tækjaskáp, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, span helluborð og ofn, svartur vaskur með gylltum blöndunartækjum, rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við með góðu skúffuplássi, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með parket á gólfi og glæsilegu útsýni til Snæfellsjökuls og víðar.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp , útgengi út á sér hellulagða verönd og sameiginlegan garð sem er í miðjum hringnum og er alveg lokaður.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp, útgengi út á hellulagða verönd til austurs.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu með hringspegli fyrir ofan, skápur til hliðar, flísar á gólfi og hluta til á veggjum, flísalögð sturta.
Teppalagður stigi niður á neðri hæð sem er notað sem fataherbergi í dag, væri hægt að útbúa sjónvarpshol þar.Þvottahús er flísalagt , tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Innangengt er úr miðrými neðri hæðar beint út á sér bílastæði í bílgeymslu, búið að gera ráð fyrir rafhleðslu í öllum bílastæðum.Húsinu hefur verið haldið vel við, var nýlega málað og múrviðgert, þak yfirfarið, búið er að gera ráð fyrir rafbílastöð í öllum bílastæðum. Þakrennurm i innri hring verður skipt út í sumar.SJÁVARGRUND 1-15 er steinsteypt íbúðarhús, kjallari, tvær hæðir og ris, 32 íbúðir eru í húsinu. Bílakjallari er undir húsinu. Í bílakjallara eru þrjár hjólageymslur og þrjár dekkjageymslur sem er skipt á milli íbúðanna. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin, sérnotaflötur fylgir íbúðinni að framanverðu og aftanverðu við húsið. Hellulögð verönd með plastflísum með skjólveggjum er framan við húsið og hellulögð stétt með skjólveggjum aftan við húsið, sameiginlegur innri garður, sorpgeymsla er framan við húsið.Einstaklega falleg eign í góðu hverfi. Stutt í alla þjónustu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, sundlaug, íþróttmiðstöð og verslanir Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is