MARKASKARÐ Í RANGÁRÞINGI EYSTRA. Um er að ræða jörðina Markaskarð í Vallarkrók í Rangárþingi eystra. Samkvæmt yfirlitsmynd Punkta og hnita er stærð jarðarinnar 148,8 hektarar. Landið sem er allt gróið og grasgefið er tvískipt, 88,5 hektarar af því eru í hliðum Markaskarðsfjalls og þar eru bæjarhúsin. Við bakka Eystri Rangár er svo landspilda sem er 60,3 hektarar. Ræktað land er talið vera um 34 hektarar. Af bæjarhlaðinu er afar víðsýnt og fallegt útsýni. Jörðinni fylgir veiðiréttur í Eystri Rangár og á henni eru eftirtaldar húseignir:
Íbúðarhús byggt úr timbri árið 1980, stærð 119,6 fm. Húsið er klætt að utanverðu með bárujárni. Húsið telur: Anddyri með dúk á gólfi. Gang með parketi á gólfi. Eldhús með parketi á gólfi og þokkalegri innréttingu. Baðherbergi með máluðu gólfi og baðkeri. Fjögur svefnherbergi, tvö með teppum á gólfi, eitt með dúk og eitt með máluðu gólfi. Stofu með teppi á gólfi og uppteknu lofti. Búr með máluðu gólfi. Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með máluðu gólfi.
Íbúðarhús byggt úr timbri árið 1929, stærð 91,6 fm. Húsið er klætt að utan með járni og þarfnast viðhalds og endurbóta.
Útihús: Fjós byggt úr steinsteypu árið 1957, stærð 234,6 fm. Fjóshlaða byggð úr steinsteypu árið 1968, stærð 97,6 fm. Votheysturn, byggður úr steinsteypu árið 1964, stærð 14,5 fm. Fjárhús og hlaða, járnklædd timburhús byggð á árunum 1940 og 1945. Óskráð bogaskemma.
Allar nánari upplýsingar veita: Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877 og netfang: agust@fannberg.is
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.