Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Holtsvegur 15, 210 Garðabær
Glæsileg og vel skipulögð íbúð í sérflokki á góðum stað í Urriðaholtinu. Stutt í helstu þjónustu, verslanir, skóla og leiksvæði. Snjóbræðsla er í gangstétt fyrir framan húsið og búið er að tengja hleðslustöðvar á bílastæðinu fyrir íbúa.
Vel skipulögð 3ja herbergja, 90,2 fm íbúð með sérinngangi í Urriðaholti 15, Garðabæ.
Íbúðin er á annarri hæð, en fyrstu hæð ofan götu - aðgengi er því gott, gengið er beint inn í íbúðina frá bílastæði.
Eignin skiptist í rúmgóða forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, geymslu í sameign, góðar svalir til suðurs og pall til norðurs. Vandaðar innréttingar, steinn á borðum, innbyggð lýsing í eldhúsi og hjónaherbergi, tæki frá Miele og Liebherr. Góð eign í vönduðu, álklæddu húsi.
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Parket á gólfi og góðir fataskápar sem ná upp í loft.
Eldhús: Fallegt með góðri innréttingu og eyju frá GKS. Steinn á borðum, undirlímdur vaskur, vönduð heimilistæki frá Miele og innbyggður ísskápur með klakavél frá Liebherr. Flísalagt á milli skápa.
Stofa og borðstofa: Bjart, opið rými sem snýr til suðurs, fallegt óhindrað útsýni.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott, góðir fataskápar sem ná upp í loft. Útgengt úr hjónaherbergi út á timburverönd.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott, góður fataskápur sem nær upp í loft.
Baðherbergi/þvottahús: Glæsilegt og rúmgott, flísalagt, með góðri innréttingu og sérsmíðuðum speglaskáp með lýsingu. Steinn á borði, undirlímd handlaug, upphengt salerni og walk-in sturta. Inn af baðherbergi er þvottahús sem stúkað er af með rennihurð. Í þvottahúsinu eru vandaðar innréttingar og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svalir og verönd: Beggja megin við íbúðina.
Geymsla: staðsett í sameign hússins.
Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.