Fasteignaleitin
Skráð 17. feb. 2025

Hólmbergsbraut 13

Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
107.6 m2
Verð
45.000.000 kr.
Fermetraverð
418.216 kr./m2
Fasteignamat
14.300.000 kr.
Mynd af M. Sævar Pétursson M.sc
M. Sævar Pétursson M.sc
Lögg. fasteignasali
Fasteignanúmer
2534079
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
08
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Hólmbergsbraut 13, 230 Reykjanesbæ.
Um er að ræða 107,6 fm. atvinnuhúsnæði / geymsluhúsnæði á einni hæð með tveimur inngangshurðum og stórri aksturshurð. Möguleiki er á að setja upp milliloft.
Byggingin samanstendur af 14 iðnaðarbilum.
 
Nánari lýsing:

Eigninni er skilað án innveggja og innréttinga.
Möguleiki er á að setja upp milliloft.
Ekki eru settar upp snyrtingar í rýmin, en lagnakerfið gerir ráð fyrir að hægt sé að koma þeim fyrir síðar.
 
Byggingarlýsing:
Byggingin er gerð úr staðsteyptum veggjum. Innveggir milli rýma eru steinsteyptir og útveggir eru steinsteyptir og einangraðir með steinull og klæddir liggjandi báruáli.
Þak er klætt með samlokueiningum úr steinull á límtrésbitum.
Gluggar eru álgluggar með tvöföldu einangrunargleri.
Tvær inngangshurðir eru til staðar, að framan og aftan auk stórri aksturshurð með mótoropnun.
Almenn loftræsting með opnanlegum fögum.
Hvert bil hefur eigið kaldavatnsinntak, hitaveituinntak og rafmagnstöflu.
Gólfið er steypt.
 
Lóð og aðkoma:
Heildarstærð lóðar er 3.841,2 m², skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð.
Tvö bílastæði fyrir hvert bil.
Góð aðkoma er að eigninni, lóðin er malbikuð að framan. grjóthleðsla eða sambærilegur frágangur aftan við byggingu.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr, kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sambyggð 4, íbúð 0303
Sambyggð 4, íbúð 0303
815 Þorlákshöfn
71.1 m2
Fjölbýlishús
312
557 þ.kr./m2
39.600.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0403
Hnjúkamói 16, íbúð 0403
815 Þorlákshöfn
50.9 m2
Fjölbýlishús
211
894 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0402
Hnjúkamói 16, íbúð 0402
815 Þorlákshöfn
67 m2
Fjölbýlishús
312
790 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0105
Hnjúkamói 16, íbúð 0105
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin