CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu fallega 93,8 fm íbúð á jarðhæð við Björtuhlíð í Mosfellsbæ. Þetta er mjög lagleg íbúð með þremur svefnherbergjum, opnu eldhúsi og stofu. Íbúðin er frábærlega staðsett en Lágafellsskóli og Lágafellslaug er í 5 mínútna göngufæri. Frábær eign fyrir stækkandi fjölskyldu á besta stað í Mosfellsbæ. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða thorbirna@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT Þrívíddarteikning af eigninni:SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-DNánari lýsing:
Anddyri: Gott anddyri með góðri kommóðu. Flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa. Úr stofu er gengið út á skjólgóðan sólpall. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið og gott eldhús við stofu. Hvít IKEA innrétting. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi I-II: Tvö góð barnaherbergi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Gott baðherbergi með grárri innréttingu og skáp, hvít borðplata með vask, stór upphengdur spegill, handklæðaofn og baðkar með sturtu. Flísar á gólfi og hluta að veggjum.
Þvottaherbergi og geymsla: Er innan íbúðar. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Góðar hirslur á veggjum. Harðparket á gólfi.
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða
kalli@croisette.is Þorbirna Mýrdal, löggiltur fasteignasali í s. 888-1644 eða
thorbirna@croisette.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.